Óvenjulegt að slagsmál og fíkniefni séu áberandi á Dönskum dögum 17. ágúst 2008 20:38 Frá Stykkishólmi.
Það er mjög óvenjulegt að á Dönskum dögum komi upp slagsmál og fíkniefnamál, að sögn Daða Heiðars Sigurþórssonar, framkvæmdastjóra hátíðarinnar. Danskir dagar voru haldnir um í Stykkishómi um helgina í fimmtánda skipti. Slagsmál brutust út og mikillar ölvunar varð vart, einkum á aðfararnótt laugardagsins. Daði telur að aldurshópurinn sem hafi sótt Stykkishólm heim um helgina sé allt annar en sá sem hafi verið hingað til. „Við höfum verið heppin að menningarnótt hefur verið á sama tíma og Danskir dagar undanfarin ár," segir Daði. Hann bendir á að dagskráin á menningarnótt höfði betur til ungs og skemmtanaglaðs fólks. Danskir dagar hafi hins vegar hingað til verið róleg fjölskylduhátíð fyrir brottflutta Hólmara. Núna hittist þessar tvær hátíðir ekki á sömu helgi og því hafi annar aldurshópur komið til hátíðarinnar en áður. Daði sagðist lítið vita um mál fimmtán ára gamallar stúlkur sem var færð á spítala eftir að hafa neytt alsælu. „Ég hef bara upplýsingar um þetta frá lögreglu," segir Daði. Hann bendir á að fíkniefnaneysla sé fylgifiskur allra hátíða en hafi ekki verið áberandi á þeirra hátíð fram að þessu. Daði segir að þrátt fyrir þau lögreglumál sem hafi komið upp á hátíðinni megi ekki gleyma því að 99% af þeim þrjú þúsund gesta á hátíðinni hafi verið til mikillar fyrirmyndar.
Tengdar fréttir Fimmtán ára stúlka á spítala eftir e-töflu neyslu Fimmtán ára stúlka var flutt alvarlega veik á sjúkrahús eftir að hafa tekið inn e-töflur á Dönskum dögum í Stykkishólmi um helgina. Að sögn Ólafs Guðmundssonar, yfirlögregluþjóni á Snæfellsnesi, fluttu lögreglumenn stúlkuna á spítala um leið og ljóst var hvað hafði gerst. 17. ágúst 2008 19:06 Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Sjá meira
Fimmtán ára stúlka á spítala eftir e-töflu neyslu Fimmtán ára stúlka var flutt alvarlega veik á sjúkrahús eftir að hafa tekið inn e-töflur á Dönskum dögum í Stykkishólmi um helgina. Að sögn Ólafs Guðmundssonar, yfirlögregluþjóni á Snæfellsnesi, fluttu lögreglumenn stúlkuna á spítala um leið og ljóst var hvað hafði gerst. 17. ágúst 2008 19:06