Fimmtán ára stúlka á spítala eftir e-töflu neyslu 17. ágúst 2008 19:06
Fimmtán ára stúlka var flutt alvarlega veik á sjúkrahús eftir að hafa tekið inn e-töflur á Dönskum dögum í Stykkishólmi um helgina. Að sögn Ólafs Guðmundssonar, yfirlögregluþjóni á Snæfellsnesi, fluttu lögreglumenn stúlkuna á spítala um leið og ljóst var hvað hafði gerst. „Hún var á spítalanum vel fram á næsta dag en fór svo eftir því sem ég best veit í fylgd með móður sinni heim af spítalanum," segir Ólafur. Að sögn Ólafs lék grunur á að stúlkan hefði fengið efnið frá annarri stúlku á svipuðum aldri. Leitað hafi verið á henni með aðstoð fíkniefnahunds, en hún hafi harðneitað að hafa afhent henni þessar töflur. Ólafur segir að hið minnsta þrjú þúsund manns hafi verið á hátíðinni. Nú sé flest fólkið farið og lögreglan sé byrjuð að skrifa skýrslur og fara yfir mál sem hafi komið á borð lögreglunnar. Þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem Danskir dagar eru haldnir hátíðlegir en þeir voru mun erilsamari fyrir lögreglu nú en áður. „Hún kom á óvart þessi hátíð. Þetta er kannski ekkert mikið miðað við Þjóðhátíð eða einhverja þrjátíu þúsund manna Fiskidaga, en í samhengi við Danska daga er þetta óvenju mikið," segir Ólafur. Hann segir að hingað til hafi verið lagt upp með að þessi hátíð væri bara fyrir brottflutta. Ólafur segir hins vegar að það sé villandi að draga ályktanir út frá því að fangageymslur hafi fyllst. Það séu einungis þrír klefar í Stykkishólmi.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira