Ríkisendurskoðun styður aðskilnað - alvarlegur samskiptavandi aðila 23. maí 2008 12:06 Ríkisendurskoðun styður áform Björns Bjarnasonar. MYND/Pjetur
Ríkisendurskoðun telur rétt að hrinda tillögum dómsmálaráðuneytisins um aðskilnað tolls, löggæslu og flugverndar hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum í framkvæmd enda hafi hún áður vakið máls á því að að breyta núverandi skipan mála. Þetta kemur fram í nýrri stjórnsýsluúttekt stofnunarinnar sem ráðist var í að beiðni Alþingis. Í skýrslunni segir Ríkisendurskoðun einnig að tillögur ráðuneytisins stuðli að því að þau ráðuneyti sem lögum samkvæmt fara með forræði tollgæslu og flugverndar fái skýrari aðkomu að markmiðssetningu og ákvörðun þjónustustigs á þessum sviðum sem og ábyrgð á nauðsynlegum fjárveitingum til þeirra. Unnið í sameiningu að breytingum Að mati Ríkisendurskoðunar hefur verið alvarlegur samskiptavandi milli aðila frá því að LRS færðist undir dómsmálaráðuneytið og snýst hann ekki eingöngu um boðaðar breytingar á embættinu. Mikilvægt sé að trúnaður og traust ríki eftir að verkefnum þess hefur verið breytt. Þótt ekki sé fullur samhljómur milli málsaðila um ágæti fyrirhugaðra breytinga telur Ríkisendurskoðun eftir að hafa rætt við þá að þeir hafi ákveðið að leggja ágreining sinn til hliðar og vinna í sameiningu að framgangi þeirra breytinga sem til stendur að gera á skipulagi og rekstri embættisins. Stjórnvöld þurf að meta þörf á toll- og löggæslu Ríkisendurskoðun segir breytt stjórnun og fjármögnun verkefna kalli á að stjórnvöld taki afstöðu til þess hversu mikla lög- og tollgæslu þarf vegna starfseminnar á flugvellinum. Verði niðurstaðan að halda sem næst óbreyttum mannafla er ljóst að auka þarf fjárveitingar til löggæsluverkefna um 315 milljónir króna til að bæta upp tekjutapið og ná rekstri löggæsluhluta embættisins hallalausum án frekari sparnaðaraðgerða. Nokkrar deilur hafa verið um áform Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra að skilja að toll og lögreglu á Suðurnesjum og hefur þingflokkur Samfylkingarinnar lagst gegn hugmyndunum og meðal annars beðið eftir úttekt Ríkisendurskoðunar. Uppsafnaður fjárhagsvandi Tillögur dómsmálaráðherrar eru tilkomnar vegna fjárhagsvanda embættisins á Suðurnesjum en embættið varð til í upphafi síðasta árs. Ríkisendurskoðun bendir á að fjárhagsvandinn sé ekki nýtilkominn því embætti Sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli hafði verið rekið umfram fjárheimildir um langt árabil og var uppsafnaður halli 158 milljónir við upphaf síðasta árs. Ríkisendurskoðun segir enn fremur að þó að ef verkefnum embættisins verði breytt komi til álita að því verði áfram falin dagleg stjórnun verkefna á sviði tollgæslu og flugverndar með þjónustusamningum. „Ákveðin fag- og fjárhagsleg rök eru bæði að baki núverandi skipulagi og kynntum breytingum. Verði af breytingum á verkefnum minnkar þó að líkindum ávinningurinn hjá LRS en eykst hjá þeim stofnunum sem taka við toll- og öryggisgæslu. Þann ávinning þarf að meta," segir Ríkisendurskoðun einnig. Skýrsluna í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Fleiri fréttir „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Sjá meira