Tekur undir kröfur Gylfa um að ráðherrar víki 13. nóvember 2008 10:00 MYND/Hari
Skúli Thoroddssen, framkvæmdastjóri Starfgreinasambandsins, tekur undir þær kröfur Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, að Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra eigi að axla ábyrgð á bankahruninu og segja af sér. Í pistli á heimasíðu Starfsgreinasambandsins segir Skúli að það sé staðreynd að þjóðin sé komin á vonarvöl vegna pólitískra mistaka. „Traustið á Seðlabankann er löngu horfið og þeir aðrir sem bera ábyrgð á vandanum eru þær eftirlitsstofnanir sem brugðust, fjármáleftirlitið og bankamálaráðuneytið. Það er því eðlilegt að forseti ASÍ kalli eftir ábyrgð fjármála- og bankamálaráðherra, sem brugðust embættisskyldu sinni. Undir það má taka. Þeir áttu eða a.m.k. máttu vita, að útrás bankanna gat endað með ósköpum. Þótt engan hafi grunað að afleiðingarnar yrðu jafn skelfilegar og raun bar vitni, er hin pólitíska og stjórnsýslulega ábyrgð mikil og óumflýjanleg. Hana verða menn að axla," segir Skúli. Hann bætir við að ábyrgð útrásarmanna sé mikil og þeirra skuldadagar hljóti og verði að koma. Verðum að leita samninga með auðmýkt Skúli fjallar einnig um deilur Íslendinga við Breta og Hollendinga vegna Icesave-reikninganna og áhrif þeirra á lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Hann segir óstaðfestar fregnir herma að íslensk stjórnvöld hafi ákveðið að reyna til þrautar að semja við þessar þjóðir og að þetta sé reyndar eina leiðin til að fá lánafyrirgreiðslu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og öðrum ríkjum sem sé brýnasta verkefni dagsins í dag. Við höfum hins vegar ekki efni á að axla ábyrgð á öllum þessum skuldbindingum. „Fjárhagsbaggin mun þýða landflótta, hrun og áratuga fátækt hér á landi ef við berum hann ein. Við verðum þess vegna að leita aðstoðar og semja okkur út úr vandanum, viðurkenna hin pólitísku mistök undanfarinna ára og mæta örlögum okkar af auðmýkt. Við viljum borga en getum það ekki nema með aðstoð alþjóðasamfélagsins til lengri tíma. Við þurfum neyðaraðstoð og hjálp eru þau skilaboð sem utanríkisráðherra verður að koma á framfæri í útlöndum. Því lengur sem það dregst, mun reiði almennings á Íslandi og í útlöndum magnast. Fólk vill vita hvert stefnir," segir Skúli.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Sjá meira