Innlent

Hús á reki í Tjörninni

Kofinn knái í Tjörninni í Reykjavík, sem vakið hefur talsverða athygli og hluti af Listahátíð í Reykjavík, losnaði frá stað sínum í rokinu í nótt og rak yfir alla Tjörnina.

„Eitt akkeri hússins losnaði og það rak upp að Tjarnargötu. Sem betur fer var ekkert tjón á húsinu eða lífríki Tjarnarinnar en það eru menn að fara yfir stöðuna núna og kanna hvort húsið verði fært aftur á sinn upprunalega stað eða fest á staðnum sem það er núna. Þessu verður kippt í liðinn á næstu klukkustundum," segir Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Listahátíðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×