Hrikalegt að sleppa táknmálsfréttum þegar skjálftinn reið yfir 2. júní 2008 14:08 Sigurlín Margrét er framkvæmdastjóri Táknmáls ehf. „
Mér fannst nú hrikalegt að þeir skyldu sleppa þeim, miðað við tímasetningu hafði RÚV kjörið tækifæri til að koma aðvörunum Almannavarna á framfæri á táknmáli til jafns við aðra landsmenn," segir Sigurlín Margrét Sigurðardóttir framkvæmdastjóri þegar Vísir spyr hana út í þá staðreynd að RÚV felldi niður táknmálsfréttir fimmtudaginn 29. maí, daginn sem Suðurlandsskjálftinn gekk yfir. „Þetta hefði ekki gerst ef málefnum minnihlutahópa væri sinnt. Þetta er nú enn almenningssjónvarp þó opinbert hlutafélag er. Textinn sem settur var á skjáinn var pínu bragabót en hann hefði átt að vera með stærra letri. Upplýsingar á textanum voru ekki uppfærðar reglulega og voru sömu upplýsingar aftur og aftur þó eitthvað hafi komið af nýjum upplýsingum sem ég geri mér hugarlund um að svo sé." "Hefði ég hinsvegar verið í húsinu hefði ég boðist til að koma brýnustu upplýsingum áleiðis á táknmáli, jafnvel við hlið Boga (Ágústsonar) ef svo hefði borið að, þannig hefði upplýsingarskyldu um jarðskjálftann verið sinnt til allra landsmanna." „Ég sendi póst á fréttastofu RÚV og bað þá um að hleypa táknmálsfréttum að og minnti á að heyrnarlaust fólk væri farið að bíða eftir að fá sínar upplýsingar. Því var ekkert svarað, enda mikill hamagangur í gangi." „Svona almennt séð þá finnst mér að Almannavarnir ættu að spá aðeins í táknmálið sem upplýsingarmiðil þegar vá ber að dyrum. Heyrnarlausir eru enn gleymdur hópur, því skal að stórum hluta kenna að enginn ráðgefandi um þessi mál er starfandi hjá ríkinu sem og í RÚV." „Hvað mig sjálfa varðar í jarðskjálftanum, þá fann ég vel fyrir honum, var ein heima og svona í þann mund að fara út. Sat við tölvuna og horfði á hamaganginn í íbúðinni, ljósið ruggaði yfir hausunum á mér, stólarnir skröltu og glerskápurinn skalf. Ég bý á fjórðu hæð og varð svolítið hrædd en þaut svo út að sækja dóttur mína og athugaði í leiðinni með son minn. Það var allt í lagi með þau."
Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent