Raflistahátíð í nánd 28. apríl 2008 17:37 Mynd tekin af heimasíðu RAFLOSTs. MYND/Raflost
Raflistahátíðin RAFLOST verður haldin dagana 30. apríl - 2. maí. Hátíðin er sambland af tónleikum og námskeiðum þar sem fram koma erlendir og innlendir raflistamenn í fremstu röð. Frá þessu segir í fréttatilkynningu frá Listaháskóla Íslands. Heiðursgestur hátíðarinnar er hið heimsþekkta bandaríska raftónskáld Morton Subotnick. Hann mun halda fyrirlestur í hádeginu á miðvikudaginn og tónleika fimmtudagskvöldið 1. maí. Fyrirlesturinn verður í fyrirlestrarsal Listaháskóla Íslands í Laugarnesi en tónleikarnir verða í Sölvhóli, tónleikasal Tónlistardeildar LHÍ við Sölvhólsgötu. Á tónleikunum verða flutt ný verk eftir hann með hjálp fartölvu og píanóleikarans Tinnu Þorsteinsdóttur. Tón- og myndleikar í Möguleikhúsinu Aðrir erlendir gestir verða vídeólistamennirnir Teijo Pellinen frá Finnlandi og Monika Frycova frá Tékklandi. Þau munu koma fram ásamt íslenskum listamönnum á tón- og myndleikum í Möguleikhúsinu við Hlemm föstudagskvöldið 2. maí. Á þeim tón- og myndleikum mun Pellinen sýna gagnvirkt sjónvarp og Frycova mun sýna listir sínar, auk þess sem fram koma margir íslenskir listamenn. Má þar nefna Vélmennaóperu Kristins R. Þórissonar frá Háskólanum í Reykjavík, hljóð- og myndsveitina Netsky sem er skipuð raflistakennurum LHÍ, Tónlistarskóla Kópavogs og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, vídeólistamanninn Harald Karlsson, sveitina Raflosta sem er skipuð nemendum á skynjaranámskeiði hátíðarinnar, auk rafhljómsveitarinnar Hestbaks, sem er nýkomin frá tónleikahaldi í New York. Auk tónleikanna verður haldið námskeið í notkun ýmissa tækja og skynjara sem nýtast við flutning raftónlistar og rafmyndlistar. Þátttakendur læra að leika á þessi tæki og munu flytja saman nýtt frumsamið rafverk föstudaginn 2. maí. Aðstandendur RAFLOSTs eru kennarar og nemendur í raftónlist og nýmiðlun frá Listaháskóla Íslands, Tónlistarskóla Kópavogs, Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Háskólanum í Reykjavík.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fleiri fréttir Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Sjá meira