Innlent

Björn: Engar tillögur komið fram um að lögum um forsetakosingar verði breytt

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að engar tillögur hafi komið fram hvorki í ríkisstjórn ná á Alþingi um að lögum um forsetakosningar verði breytt.

Þórunn Guðmunsdóttir, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavík norður, hefur bent á, meðal annars hér á Vísi, að löngu sé orðið tímabært að endurskoða lög og reglur um forsetakosningarnar.

„Árið 1944 þegar lögin voru sett og ákveðið að meðmælendur yrðu 1.500 talsins var þjóðin helmingi fámennari en nú er," hefur Þórunn meðal annars sagt.

Auk þess að lögum verði breytt þannig að forsetaframboð þurfi fleiri meðmælendur leggur Þórunn til að settar verði reglur um hvernig meðmælendalistar líti út. Hún vill staðlað form á slíka lista.

Þetta kemur í kjölfarið á því harðri gagnrýni hennar á vinnubrögð Ástþórs Magnússonar og stuðningsmanna hans við að afla meðmælenda. Meðal annars nefnir Þórunn sem dæmi að meðmælalistar Ástþórs hafi ekki verið allir eins. Á einum þeirra hafi verið texti efst um að forsetinn ætti að gegna forystuhlutverki í friðarmálum heims. Undir þessari yfirlýsingu var svo með mun smærra letri texti um að viðkomandi mælti með framboði Ástþórs. Hún segir að síðar hafi fólk haft samband við hana sem skrifaði undir þessa lista og taldi sig vera að samþykkja friðarboðskap, en ekki að mæla með framboði Ástþórs Magnússonar.

"Það hefur verið rætt innan dóms- og kirkjumálaráðuneytisins að birta leiðbeiningu og jafnframt gefa sýnishorn af því, hvernig slíkir meðmælendalistar skuli vera, það ætti að auðvelda þeim, sem safna meðmælendum og einnig hinum, sem vinna úr listunum," sagði Björn Bjarnason í svari til Vísis við fyrirspurn varðandi þessar ábendingar.

Frétt Vísis um gagnrýni Þórunnar má lesa hér




Fleiri fréttir

Sjá meira


×