Innlent

Aflaverðmæti íslenskra skipa minnkar um 6,5%

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,6 milljörðum kr. á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2008 samanborið við 32,7 milljarða á sama tímabili 2007.

Aflaverðmæti hefur dregist saman um 2,1 milljarð eða 6,5% milli ára. Aflaverðmæti aprílmánaðar nam 8,4 milljörðum miðað við 7,6 milljarða í apríl 2007.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar í dag. Þar segir að aflaverðmæti botnfisks janúar til apríl 2008 var 24,2 milljarðar sem er sambærilegt við sama tímabil árið 2007. Verðmæti þorskafla var 13,0 milljarðar og dróst saman um 4,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 5,7 milljörðum, jókst um 16% og verðmæti ufsaaflans nam 1,4 milljarði sem er 14,5% samdráttur miðað við fyrstu fjóra mánuði ársins 2007.

Verðmæti flatfiskafla janúar til apríl nam 1,3 milljarði og dróst saman um 6,2% frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla nam 5 milljörðum sem er samdráttur upp á 27,6% miðað við sama tímabil árið 2007.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×