Lítil sem engin sýnileg löggæsla í borginni 17. júlí 2008 12:50 Dagur B Eggertsson borgarfulltrúi Samfylkingar.
Í ljósi frétta af háskalega fámennri vakt lögreglu í miðborginni um helgar ítrekar minnihluti borgarráðs athugasemdir sínar við að í vinnu nefndar borgarstjóra að miðborgarmálum skuli ekki hafa verið kallað eftir aukinni og sýnilegri löggæslu, sbr. bókun minnihlutans á fundi borgarráðs 3. júlí sl. Þá er ítrekað að minnihlutinn lagði á sama fundi fram neðangreinda fyrirspurn, að gefnu tilefni: "Óskað er eftir því að kannað verði hvernig þróun mannafla lögreglunnar á miðborgarvakt hefur orðið frá því síðasta sumar en síðasta haust var kynnt að sýnileg löggæsla yrði efld í Miðborginni." Furðu vekur að borgarráði hafi ekki verið svarað og mat lagt á þá stöðu sem uppi er í löggæslumálum borgarinnar því engin ein aðgerð er mikilvægari í málefnum miðborgarinnar en að tryggja aukna og sýnilega löggæslu. Staðan í þeim efnum er grafalvarleg ef marka má fréttatilkynningu sem fór frá skrifstofu borgarstjóra í gær. Þar segir að "samkvæmt heimildum frá lögregluembættinu voru aðeins níu lögregluþjónar á vakt í miðborginni aðfaranótt 6. júlí sl. Tólf lögregluþjónar voru á vakt aðfaranótt 12. júlí og fjórtán aðfaranótt 13. júlí." Ekki verður annað sé en að þetta séu enn lægri tölur en Stefán Eiríksson lögreglustjóri hefur gefið upp í fjölmiðlum. Ljóst er að miðað við þessa stöðu er ekki aðeins alls ófullnægjandi miðborgarvakt heldur má vera ljóst að viðvera sýnilegrar lögreglu um helgar í hverfum borgarinnar og nágrannasveitarfélaga er lítil sem engin. Löggæsla er grundvallar almannaþjónusta. Því hlýtur að verða að knýja á um skýr svör og tafarlausar úrbætur af hálfu dómsmálayfirvalda. Þetta kemur fram í tölvupósti frá minnihlutanum í borgarstjórn sem barst Vísi fyrir stundu.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira