Innlent

Kaupmáttur rýrnar síðastliðna tólf mánuði

Kaupmáttur hefur rýrnað síðastliðna tólf mánuði miðað við þróun launavísitölu og verðbólgu. Samkvæmt frétt á vef Hagstofunnar reyndist launavísitalan hafa hækkað um 1,2 prósent frá febrúar til mars.

Áhrifa nýgerðra kjarasamninga landssambanda og stærstu aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins gætir í hækkun launavísitölunnar. Samkvæmt samningunum sem undirritaðir voru þann 17. febrúar síðastliðinn áttu launataxtar að hækka um 18.000 krónur frá 1. febrúar 2008, auk samkomulags um sérstaka launaþróunartryggingu sem felur í sér 5,5 prósent lágmarkshækkun launa frá janúar 2007 til gildistöku nýrra samninga. Þar sem samningarnir voru ekki endanlega samþykktir fyrr en 12. mars síðastliðinn þá má gera ráð fyrir að þeir komi ekki að fullu til framkvæmda fyrr en í apríl.

Í vísitölunni gætir einnig áhrifa endurskoðunarákvæða samninga Kennarasambands Íslands og launanefndar sveitarfélaganna frá 8. mars 2007, sem meðal annars kvað á um hækkun allra starfsheita um einn launaflokk frá 1. mars 2008.

Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,8 en hins vegar er verðbólga síðastliðna tólf mánuði 8,7 prósent og því hefur kaupmáttur rýrnað á síðastliðna tólf mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×