Innlent

Ráðherra skoðar sjávarútveg í Brussel

Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra er í Brussel.
Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra er í Brussel.

Sjávarútvegssýningarnar European Seafood Exposition og Seafood Processing Europe hófust í Brussel í morgun.

Einar K. Guðfinnsson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, er einn þeirra sem staddur er í Brussel og skoðaði hann meðal annars aðstöðu HB Granda, eftir því sem fram kemur á vef fyrirtækisins.

Um 1600 fyrirtæki frá 87 þjóðlöndum taka þátt í ESE sýningunni og 200 aðilar sýna á SPE sýningunni, sem er vettvangur véla- og tækjaframleiðenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×