Innlent

Hvergerðingar hafa áhyggjur af mengun frá Hellisheiði

Hvergerðingar hafa áhyggjur af hljóð-, lykt- og sjónmengun af fyrirhuguðum virkjunum Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði, og þá einkum af Bitruvirkjun í aðeins nokkurra kílómetra fjarlægð frá bænum.

Þetta kom fram á borgarafundi um málið í Hveragerði í gærkvöldi. Þeir óttast líka að að grunnvatnið geti mengast og þar með drykkjarvatn bæjarbúa.

Fulltrúar Orkuveitunnar gerðu grein fyrir ýmsum lausnum, sem Orkuveitan hyggst nota til að lágmarka umhverfisáhrifin, meðal annars að beita nýrri aðferð til að draga úr losun brennisteinsvetnis, sem veldur hveralykt, sem sumir líkja við fýlu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×