Ísland getur gegnt stóru hlutverki í Mið-Austurlöndum Óli Tynes skrifar 22. apríl 2008 11:45
Fundi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, og Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, á Bessastöðum lauk fyrir stundu. Á blaðamannafundi eftir viðræður forsetanna sagði Abbas að það væri löngu liðin tíð að aðeins stórveldi réðu því sem gerðist í heiminum. Hann sagði að það væri ekki stærð þjóða sem skipti máli heldur væru það þær áherslur sem þær hefðu í samskiptum sínum við aðra. Abbas sagði að á fundi sínum með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, hefði hann skynjað djúpan vilja til þess að koma að vandamálum Mið-Austurlanda og reyna að verða þar að liði. Með sögu sína að baki væri margt sameinginlegt með Palestínumönnum og Íslendingum. Báðar þjóðir hefðu lengi þurfti að berjast fyrir sjálftstæði sínu. Íslandi hefði tekist það á friðsamlegan hátt og bæði Palestínumenn og Ísraelar gætu mikið af því lært. Palestínski forsetinn sagði að Ísland gæti vissulega gegnt stóru hlutverki í Mið-Austurlöndum og hann vonaði að eftir fundinn með forseta Íslands yrði sú raunin. Mahmoud Abbas lagði áherslu á að Ísland ógnaði engum og hefði engra hagsmuna að gæta. Því nyti það mikils trausts sem gæti vel gagnast í aðkomu að stórum heimsmálum. Abbas mun á eftir snæða hádegisverð á Bessastöðum ásamt fylgdarmönnum sínum en eftir hádegið fer hann til fundar við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra. Frá Íslandi heldur Abbas vestur um haf til þessa að ræða við George Bush Bandaríkjaforseta um friðarhorfur fyrir botni Miðjarðarhafs. Alls eru 28 manns í fylgdarliði Abbas, þar á meðal forsætisráðherrann Ahmed Qurie og Saeb Erekat, aðalsamningamður Palestínumanna. Abbas kom til landsins eftir miðnætti og gisti á Hilton-hótelinu í nótt.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Sjá meira