Nákvæm líkamsskoðun ávallt undanfari Rítalíngjafar Atli Steinn Guðmundsson skrifar 22. apríl 2008 16:48
Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir kvað embætti landlæknis nýverið hafa gefið út reglur um vinnulag við greiningu og meðferð athyglisbrests með ofvirkni. „Við vitum til þess að í einhverjum örfáum tilfellum getur verið einhver hætta vegna Rítalíns í tengslum við hjartasjúkdóma en hjartasjúkdómar eru þó mjög sjaldgæfir hjá börnum. Við ræddum þetta á sínum tíma og eftir að búið var að skoða þær rannsóknir sem að baki liggja var ákveðið að ef einhver minnsti grunur léki á hjartasjúkdómi væri vísað til hjartabarnalæknis," útskýrði Matthías og bætti því við að alltaf væri framkvæmd nákvæm líkamsskoðun áður en barni væri gefið Rítalín. Í vinnureglum þeim sem Matthías vísaði til segir að sé þekktur hjartasjúkdómur til staðar skuli ekki hefja meðferð nema að höfðu samráði við sérfræðing í hjartalækningum. Mikilvægt væri að fylgjast með blóðþrýstingi og púlsi og kæmi marktæk breyting fram eftir að lyfjagjöf hefst eða við skammtabreytingar skyldi hafa samband við hjartasérfræðing varðandi frekari gjöf lyfsins. Enn fremur segir í reglunum að komi fram hjartsláttur, hjartsláttaróregla, hækkaður blóðþrýstingur eða hjartaöng skuli hætta töku lyfsins. Gísli Baldursson, barnageðlæknir á barna- og unglingageðdeild Landspítalans, vísaði til nefndra vinnureglna og sagði að alltaf þyrfti að sýna ákveðna varúð þegar lyf væru gefin, hvort sem þar væri um að ræða Rítalín eða önnur lyf. Varla væri til það lyf sem ekki hefði einhverjar aukaverkanir og þær vinnureglur sem stuðst væri við hérlendis væru í samræmi við þá framkvæmd sem tíðkaðist annars staðar í Evrópu.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Sjá meira