Enski boltinn

Ferguson: Rooney myndi spila sem miðvörður

Rooney og Ferguson á æfingu
Rooney og Ferguson á æfingu NordcPhotos/GettyImages

Sir Alex Ferguson segist ábyrgur fyrir því að framherjinn Wayne Rooney skori ekki fleiri mörk en raun ber vitni. Hann hrósar Rooney fyrir einstakt hugarfar

"Það er líklega mér að kenna að Rooney skori ekki meira. Hann hefur fórnað sér fyrir liðið og kvartar aldrei yfir því hvar hann er látinn spila. Það segir ansi margt um hugarfar hans. Við þurfum kannski að skilgreina hlutverk hans eitthvað betur og það er engin ástæða fyrir því að hann ætti ekki að geta skorað eitthvað meira," sagði Ferguson í samtali við Sun.

"Margir leikmenn fara að væla ef þeir eru teknir út úr sínum uppáhaldsstöðum, en það gerir Rooney ekki. Hann tekur þessu sem áskorun og ég er viss um að hann myndi spila stöðu miðvarðar ef ég bæði hann um það," sagði stjórinn.

Hinn 22 ára gamli Rooney skoraði 18 mörk fyrir United á síðustu leiktíð og hafa menn eins og Pele haft orð á því að hann skori ekki nógu mörg mörk.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×