Gerólíkar skýringar á evrustuðningi Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. maí 2008 11:14 Katrín Júlíusdóttir hafnar skýringum stöllu sinnar.
Niðurstaða úr skoðanakönnun á stuðningi við upptöku evru og Evrópusambandsaðild kemur Katrínu Jakobsdóttur, þingmanni VG, ekki á óvart. Samtök Iðnaðarins skýrðu frá niðurstöðum könnunar sem Capacent gerði á stuðningi við Evrópusambandsaðild og upptöku evru. Af þeim sem svöruðu í könnuninni vildu tveir af hverjum þremur kasta krónunni fyrir evru. Um 55% svarenda sögðust fylgjandi því að sótt yrði um aðild að Evrópusambandinu og hefur fylgjendum fjölgað um 5% frá síðustu könnun. Katrín segir að þessi stuðningur sé helst til kominn vegna þess efnahagsástands sem nú ríki. „Fólk sér þarna kannski mögulega lausn og finnst stjórnvöld ekki vera að koma með lausnir," segir Katrín. Hún segist þó sjálf ekki vera hlynnt aðild að Evrópusambandinu. „Nei, ég tel að við höfum enn tækifæri til að finna sjálfstæða lausn á málum. En það kallar auðvitað á talsverða vinnu af hálfu stjórnvalda," segir Katrín.Yfirlýsing um aðildarviðræður myndi auka trúverðugleika Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að þessi stuðningur sé ekkert sem komi á óvart. „Þó að ástandið í efnahagsmálum sé mjög ýkt núna er það staðreynd að krónan hefur verið að þvælast fyrir heimilum og jafnframt litlum og meðalstórum fyrirtækjum um áraskeið," segir Katrín Júlíusdóttir. Hún hafnar alfarið skýringum Katrínar Jakobsdóttur á því að ástæðuna fyrir stuðningsins sé að rekja til aðgerðarleysis stjórnvalda. „Það er ekkert nýtt að mikill stuðningur mælist við evruna og aðild að Evrópusambandinu," segir Katrín Júlíusdóttir. Katrín Júlíusdóttir segir að þó að aðild að Evrópusambandinu sé spurning um lífskjaramál til framtíðar þá myndi yfirlýsing um að farið yrði í aðildarviðræður jafnframt auka trúverðugleika á efnahagslífinu til skamms tíma.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira