Þingið upp við vegg 29. nóvember 2008 08:30
Meðferð og afgreiðsla Alþingis á frumvarpinu um gjaldeyrishöft var aðeins formsins vegna og að nafninu til. Þingmönnum var gert ljóst að höftin væru hluti af samkomulagi stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og því eins gott að frumvarpið yrði að lögum. Stoð laganna er í nítjánda lið samkomulagsins. Þar segir að stjórnvöld séu reiðubúin að beita tímabundnum gjaldeyrishöftum á fjármagnsviðskipti. Er aðgerðin sögð nauðsynleg enda þótt hún hafi talsverð neikvæð áhrif. Breytingarnar sem gerðar voru á lögum um gjaldeyrismál í fyrrinótt voru tvíþættar. Ná þær annars vegar til refsikafla laganna og hins vegar til heimilda Seðlabankans til að ákveða reglur um höft á meðferð gjaldeyris. Skal Seðlabankinn gefa út reglur sínar að fengnu samþykki viðskiptaráðherra. Við upphaf fundar viðskiptanefndar um málið, á milli fyrstu og annarrar þingumræðu þess á fimmtudagskvöldið og inn í nóttina, gerðu fulltrúar Seðlabankans nefndarmönnum ljóst að vilji bankans stæði til að ekki þyrfti samþykki ráðherrans fyrir reglunum. Var þeim sjónarmiðum hafnað. Tómas Örn Kristjánsson og Sigríður Logadóttir voru fulltrúar Seðlabankans á fundinum. Auk þeirra komu fyrir nefndina starfsmenn viðskiptaráðuneytisins, forsætisráðuneytisins, utanríkisráðuneytisins og Fjármálaeftirlitsins, fulltrúar Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins og hagfræðingar ríkisbankanna þriggja. Málið mætti einarðri andstöðu bankamannanna og fulltrúa vinnumarkaðarins. Ósk nefndarmanna úr minnihlutanum um að fleiri hagfræðingar auk umsvifamikilla útflytjenda og lántakenda kæmu á fundinn var hafnað. Tímaskorti var borið við. Í allri málsmeðferðinni var þinginu stillt upp við vegg. Því var ekki veitt svigrúm til að afla sjálfstæðra álita eða taka upplýsta afstöðu til málsins. Í því ljósi sat stjórnarandstaðan hjá við atkvæðagreiðsluna, rétt undir klukkan fimm um nóttina.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fleiri fréttir Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Sjá meira