Merkileg stefnubreyting hjá AGS 29. nóvember 2008 03:00 Edda Rós Karlsdóttir Gjaldeyrishöft segir Edda Rós Karlsdóttir til marks um hve staðan hér sé grafalvarleg. Fréttablaðið/GVA
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur breytt um stefnu hvað gjaldeyrishöft varðar, að mati Eddu Rósar Karlsdóttur, hagfræðings í Landsbankanum. Edda Rós segir koma verulega á óvart hvað gjaldeyrishöftin séu víðtæk og að Seðlabankinn skuli fá heimild til að viðhalda þeim allt til nóvemberloka 2010. „Í þessu felst mikil stefnubreyting hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, sem hefur hingað til talað fyrir afnámi hafta og markaðslausnum. Stefnubreyting er því töluverð tíðindi og vísbending um að vinnubrögð sjóðsins hafi breyst töluvert frá því í Asíukreppunni,“ segir hún, en kveður höftin þó fyrst og fremst staðfestingu á því hvað staðan hér heima sé grafalvarleg. „Það, að við skulum velja jafn íþyngjandi aðgerðir fyrir atvinnulífið, segir meira en mörg orð. Áhættan við að fleyta þessum litla gjaldmiðli við jafn óvissar aðstæður var einfaldlega talin of mikil. Trúverðugleikinn er ekki fyrir hendi.“ Edda Rós kveðst hins vegar fegin að sjá hversu undirbúningur aðgerðanna virðist vandaður hjá Seðlabankanum, þótt kynna hefði mátt málið miklu betur. Aðkoma AGS sé einnig afar mikilvæg. „Hún er ákveðinn gæðastimpill og ætti að tryggja að aðgerðir Seðlabankans gangi ekki í bága við skuldbindingar Íslands gagnvart alþjóðasamfélaginu.“
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi Sjá meira