Þrjár flugvélar fá að fljúga 29. nóvember 2008 05:30 Holberg Másson og fimm manna fjölskylda úr Kelduhverfi áttu von á því að komast um borð í vélar til London og Parísar í gærkvöldi og nótt.
Íslendingarnir, sem voru strandaðir vegna mótmælanna í Taílandi, áttu að fara með flugvél Finnair og jafnvel Thai Air til Parísar og London í nótt. Sigurður Yngvason, bóndi í Kelduhverfi, átti von á því í gærkvöldi að sendiráðsstarfsmaður myndi hitta sig og fjölskyldu sína á flugvellinum þegar þau lentu í París í dag. Sigurður segir að vel hafi farið um fjölskylduna síðustu daga fyrir utan nóttina sem þau voru strönduð á alþjóðaflugvellinum í Bangkok. Börnin hafi þá sofið í stólum á flugvellinum. Í dag skýrist væntanlega hvernig þau komist heim en hugsanlega þurfi þau einhvern veginn að koma sér til Stokkhólms því að þau hafi farið í gegnum Stokkhólm á útleiðinni en hann hafi bara fengið skæting sem svör frá Icelandair. Sex Íslendingar hafa verið stopp í Taílandi síðustu daga. Holberg Másson er einn Íslendinganna. Hann sagði í gærkvöldi að hópurinn væri á leið á herflugvöll en þaðan átti að reyna að fljúga hópnum frá Taílandi. Holberg var samferða Sigurði og fjölskyldu hans í rútunni á flugvöllinn í gær en átti von á því að síðan myndu leiðir skilja því að Holberg átti að fara með vél til Parísar. Holberg hefur verið í forsvari fyrir ferðamennina og átti von á því að þrjár til fjórar flugvélar fengju að fara í loftið. Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir að fólk á leið til og frá Taílandi hafi sett sig í samband við ráðuneytið en vissi ekki til þess að neinn hefði beinlínis óskað eftir aðstoð.
Mest lesið Lögregla lýsir eftir vitnum að mannaferðum við Stardal Innlent Bera kennsl á mann fimmtíu árum eftir að hann lét sig hverfa Erlent „Mjög miður að við séum komin á þennan stað“ Innlent Syrgja fallið kornabarn: „Það er ekkert plan, engin lausn“ Innlent Treystir á afdráttarlaus viðbrögð bandamanna við árás helgarinnar Erlent Bjargað af efri hæð eftir að eldur kom upp á jarðhæð í íbúðarhúsi Innlent Leitað að manni með öxi Innlent Boðað til mótmæla vegna vopnasýningar í Lundúnum Erlent Einn fluttur á Landspítalann frá Fjallabaki Innlent Bein útsending: Kynnir fjárlög næsta árs Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynnir fjárlög næsta árs Bjargað af efri hæð eftir að eldur kom upp á jarðhæð í íbúðarhúsi Leitað að manni með öxi „Mjög miður að við séum komin á þennan stað“ Gleði og samvera í 60 plús leikfimi á Selfossi Syrgja fallið kornabarn: „Það er ekkert plan, engin lausn“ Engin slys á fólki þegar hjólhýsi valt Syrgja fallið kornabarn og fyrsti þúsaldardýrlingurinn Einn fluttur á Landspítalann frá Fjallabaki Kröftug mótmæli brjóti ekki gegn málfrelsi Hringveginum lokað vegna umferðarslyss Þyrlan kölluð út á mesta forgangi Jákvæð gagnvart nýrri atvinnustefnu Frábær og vel heppnuð Ljósanótt Möguleg slit á fríverslunarsamningi við Ísrael tekin fyrir Skoða að rifta fríverslunarsamningi við Ísrael Labubu bangsar ekki lengur velkomnir í Ísaksskóla Fangageymslur fullar eftir erilsama nótt Aðgerðir vegna Gasa, málfrelsi á Íslandi og ný atvinnustefna Ákærðir vegna fölsuðu taflanna tuttugu þúsund „Vona bara að hún grípi til raunverulegra aðgerða sem bíta“ Korn ræktað á um fjögur þúsund hekturum Veltir fyrir sér hvort íslensk íþróttafélög verði af milljörðum Handtekinn undir áhrifum með tvö börn í bílnum Fjölmenn mótmæli og skortur á íslenskukunnáttu þrátt fyrir doktorsnám Ákærðir fyrir hópnauðgun gegn ólögráða stúlku Gullkistan opnuð á Vestfjörðum Sóttu slasaðan ökumann við Surtshelli Gríðarlegur fjöldi á mótmælunum Þjóð gegn þjóðarmorði Tæpir sextíu þúsund fermetrar í eigu ríkisins standa tómir Sjá meira