Mikið álag á farsímakerfi 30. maí 2008 13:10
Alls voru GSM símtöl hjá Vodafone um 260 þúsund talsins á fyrstu klukkustundinni eftir skjálftann. Álagið á GSM kerfið minnkaði eftir því sem leið á daginn og var notkunin að mestu komin í eðlilegt horf um kl. 19. GSM samband hélst á öllu skjálftasvæðinu, en tímabundnar truflanir á rekstri fáeinna senda ollu skertu GSM sambandi innanhúss um stund. Tímabundnar truflanir urðu hins vegar á fastlínuþjónustu á Selfossi, vegna rofs á ljósleiðara hjá Mílu hf. en viðgerð á honum gekk vel og var ljósleiðarinn komin í gagnið um kl. 20:30 í gær. Álagið á GSM kerfið var mest á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega á svæðum þar sem fjölmenn atvinnustarfsemi fer fram. Á landsbyggðinni var álagið á GSM kerfi Vodafone fimmfalt meira en vanalega á þessum tíma dags og í Reykjavík ríflega tvöfaldaðist álagið. Hjá Símanum fengust þær upplýsingar að álagið í GSM kerfið á jarðskjálftasvæðinu hafi tvöfaldast á fyrsta klukkutímanum eftir skjálftann. Sagði Linda Björk Waage, forstöðumaður samskiptasviðs Símans, að skapast hafi svipað álag á skjálftasvæðinu eins og gerist um áramót. Einhverjar frávísanir urðu í kerfum Símans fyrsta klukkutímann eftir skjálftann en kerfið jafnaði sig fljótt.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira