Áskilja sér allan rétt verði af Bitruvirkjun 13. maí 2008 13:23 Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði. MYND/Egill
Bæjarstjórn Hveragerðis samþykkti aukafundi í morgun harðorða bókun gegn Bitruvirkjun sem rísa á í nágrenni bæjarins. Þar áskilja forsvarsmenn bæjarins sér allan rétt til aðgerða verði af virkjuninni. Orkuveita Reykjavíkur hyggst reisa Bitruvirkjun sem verður norðvestur af Hveragerði en á landi sem heyrir undir Sveitarfélagið Ölfus. Í dag rennur út frestur til þess að gera athugasemdir við auglýsta breytingu á aðalskipulagi Ölfuss sem meðal annars gerir ráð fyrir virkjuninni. Verið að fórna meiri hagsmunum fyrir minni Bæjarstjórn Hveragerðis kom saman til fundar í morgun vegna málsins þar sem fundargerð skipulagsnefndar bæjarfélagsins var samþykkt með sérstakri bókun sem snýr að Bitruvirkjun. Þar mótmælir bæjarstjórn Hveragerðisbæjar harðlega öllum áformum um virkjun við Bitru og telur einsýnt að með þeim áformum sé verið að fórna meiri hagsmunum fyrir minni. Er skorað á Sveitarfélagið Ölfus að hætta við þá breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins sem gerir ráð fyrir virkjun á þessu svæði. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, segir bæjarbúa hafa miklar áhyggjur af umhverfismengun og loftmengun. Hún bendir á að svæðið í kringum Bitruvirkjun sé eitt sérstæðasta útivistarsvæði sem Hvergerðingum og borgarbúum bjóðist og það sé til merkis um ótrúlega skammsýni ef það verði ofan á að reisa virkjun við Bitru. „Við höfum líka áhyggjur af útblæstrinum vegna nálægðar borholnanna. Á framkvæmdatímanum, sem er fjögur ár, munu 40 borholur blása til skiptis og loftmengunin berast yfir bæinn þar sem ríkjandi vindátt er yfir hann," segir Aldís. Telur enn hægt að hætta við virkjunina Athygli vekur í bókun bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar að hún áskilur sér allan rétt í framhaldinu verði Bitruvirkjun að veruleika. Aðspurð hvort verið sé að hóta málshöfðun segist Aldís ekki vera með neinar yfirlýsingar um það. Komin hins vegar eitthvað upp sem skaði hagsmuni bæjarins áskilji forsvarsmenn hans sér rétt til aðgerða. Aðspurð hvort ekki sé of seint að snúa málinu við núna segir Aldís ekki telja það. „Ég ætla ekki að trúa því. Við erum stórt sveitarfélag sem á ríka hagsmuni af því að þarna verði ekki framkvæmt," segir Aldís.Í bókun bæjarstjórnar er einnig höfðað til framkvæmdaaðilans, Orkuveitu Reykjavíkur. Þar segir að fyrirtækið hafi sýnt það og sannað í gegnum tíðina að það og forverar þess hafi haft umhverfismál að leiðarljósi. „Við trúum því að á því verði ekki breyting nú. Bæjarstjórn Hveragerðis treystir því að stjórn og stjórnendur OR sjái að sér í þessu máli og láti náttúruna og íbúa Hveragerðisbæjar njóta vafans og hætti við öll áform um virkjanir á Bitrusvæðinu og í næsta nágrenni þess," segir í bókuninni.Þá er skotið fast á nágrannasveitarfélagið Ölfus. „Bæjarstjórn gerir verulegar athugasemdir við framgöngu Sveitarfélagsins Ölfuss í málinu. Ekki er ásættanlegt að sveitarfélag geti gengið fram með þeim hætti sem hér er gert og skipulagt starfsemi í túnfæti nágrannasveitarfélags sem getur haft mikil áhrif á framtíð og uppbyggingu þess," segir enn fremur í bókuninni.
Mest lesið Leita leiða til að kveða ranglega útgefnar sektir í kútinn Fréttir „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Innlent „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ Erlent Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Innlent Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Innlent Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Innlent Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Innlent Fleiri fréttir Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gýg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Lögreglan leitar tveggja manna Frakkar viðurkenna Palestínu og stjórnarandstaðan á Alþingi mælist illa í nýrri könnun Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Hægt nokkuð á virkninni frá því í gærmorgun Aron Can heill á húfi „Sorglega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður Ljóst að stjórnarandstaðan græddi ekki á „kjarnorkuákvæðinu“ Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Tónleikar stöðvaðir vegna veikinda Arons Can Launaði neitun á gistingu með löðrungi Sjá meira