Enski boltinn

Benjani missir af byrjun tímabilsins

Elvar Geir Magnússon skrifar
Benjani.
Benjani.

Sóknarmaðurinn Benjani hjá Manchester City mun missa af byrjun komandi tímabils á Englandi vegna meiðsla. Þetta er mikil vonbrigði fyrir City sem á fáa möguleika í framlínunni.

Jo, nýr leikmaður félagsins, er kominn til móts við brasilíska landsliðið fyrir Ólympíuleikana og þá er talið að Bernardo Corradi og Rolando Bianchi séu á förum.

Það myndi þýða að Darius Vassell og Valeri Bojinov verði einu tiltæku sóknarmennirnir í byrjun tímabils.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×