Bera raungreinum við Háskólann á Akureyri vel söguna Atli Steinn Guðmundsson skrifar 21. apríl 2008 14:50 Ástríður Ólafsdóttir og Eyrún Elva Marinósdóttir. MYND/Jóna Jónsdóttir „
Þetta kom í ótrúlega góðar þarfir, maður er náttúrulega með yfirdráttinn í botni eins og allir námsmenn," sagði Ástríður Ólafsdóttir, nemi í líftækni við Háskólann á Akureyri, í spjalli við Vísi en þær Eyrún Elva Marinósdóttir, samstúdína hennar og sjávarútvegsfræðinemi, hlutu 500.000 króna styrk hvor frá Hugviti eins og Vísir greindi frá í morgun. „Líftækni fjallar í raun um notkun á hvers kyns lífverum í öllum mögulegum tilgangi, eins og t.d. við bjórbrugg," útskýrir Ástríður og bætir því við að hún hafi nú verið búin að ákveða að leggja stund á þetta nám fyrir ári. Ástríður ber raungreinakennslu við HA vel söguna, segir hana vera að miklu leyti verklega og nemendurnir fái að fikta í hlutunum. Líftæknin sé tiltölulega ný grein við skólann en þó stór hópur að útskrifast í vor. Hugur Ástríðar stendur til framhaldsnáms í erfðafræði en hún hefur ekki gert upp við sig hvort það verði strax að lokinni BS-gráðu enda er hún á 1. ári enn sem komið er. Sjávarútvegsfræðin með elstu brautum Sjávarútvegsfræðineminn Eyrún Elva tekur undir það með Ástríði að raungreinakennslu hafi vaxið mjög fiskur um hrygg við háskólann þar nyrðra, t.d. sé tilgangurinn með styrkjum Hugvits að efla það. „Sjávarútvegsfræðin er ein af elstu brautunum við HA, reyndar hafa verið gerðar breytingar á henni. Þetta er auðlindabraut sem skiptist í líftækni, sjávarútvegsfræði og orku- og umhverfisfræði," sagði Eyrún. Hún hefur ekki tekið neina ákvörðun um hugsanlegt framhaldsnám enn þá. „Það er mikilli viðskiptafræði blandað inn í sjávarútvegsfræðinámið hér við HA svo maður getur svo sem farið í hvað sem er eftir þetta," sagði hún og tók að skilnaði hjartanlega undir það með Ástríði að styrkurinn hefði komið í góðar þarfir.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Sjá meira