Vinstri grænir bara stundum á móti stokkum 7. ágúst 2008 16:42 Gísli Marteinn Baldursson.
Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að Vinstri grænir séu á móti stokkum því þeir séu of dýrir og það eigi ekki að þjóna einkabílum á þennan hátt. Samt hafi Vinstri grænir haft um það forystu að skipuleggja stokk við Mýrargötu, aðeins 200 m vestar. „Sömuleiðis styðja Vinstri grænir stokk á Miklubrautina meðfram Miklatúni og undir Lönguhlíð, sem nú er í vinnslu.Þannig að það er ljóst að Vinstri grænir telja að sumsstaðar megi vera stokkar, en annarsstaðar ekki. Þá vaknar sú spurning af hverju Vinstri grænir vilja ekki stokk fyrir framan Tónlistarhúsið," segir Gísli. „Markmiðið með stokki þar er að auka aðgengi gangandi að húsinu og tryggja góða samfellu milli þeirrar miklu starfsemi sem þar verður og miðborgarinnar. Vinstri grænir telja greinilega best sé að hafa hraðbraut fyrir framan húsið en samkvæmt umferðaspám verður umferð á þessari götu fljótlega jafn mikil og hún er núna á Hringbrautinni." „Hvernig það gagnast gangandi vegfarendum er vandséð. Þá má nefna að ef stokkurinn framan við Tónlistarhúsið yrði ekki að veruleika, heldur bara Mýrargötustokkurinn einsog Vinstri grænir vilja, þá verður stór 150 metra gangnamunni við vestanverðan miðbakkann, og ljóst er að rífa þarf hluta af gömlu verbúðunum sem þar standa og hýsa núna meðal annars Sægreifann. Það er athyglisverð stefna hjá vinstri grænum." „Samfelldur stokkur frá Sæbraut vestur í Ánanaust mun bæta mannlíf, auka umferðaröryggi og draga úr gegnumakstri um miðborgina. Á yfirborði verða hjólreiðastígar og sérstakar akreinar fyrir almenningssamgöngur, auk einnar akreinar í hvora átt yfir þá bílaumferð sem á erindi í miðborgina," segir Gísli.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Innlent Fleiri fréttir Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Sjá meira