Um sjö milljónir í bjarnarbjörgun 7. ágúst 2008 09:48 Ísbjörninn sem felldur var við Hraun í júní. MYND/Valli
Útlagður kostnaður Umhverfisstofnunar vegna tilraunar til að þess að bjarga hvítabirni, sem gekk á land við Hraun á Skaga í Skagafirði um miðjan júní, nemur að minnsta kosti 6,7 milljónum. Enn er beðið eftir tveimur reikningum vegna tilraunarinnar. Ábúendur á Hrauni urðu varir við björninn þamnn 16. júní þar sem hann vappaði um í æðarvarpinu. Ákveðið var að reyna að bjarga birninum og var kallaður til sérfræðingur frá Danmörku, Carsten Gröndahl, yfirdýralæknir dýragarðsins í Kaupmannahöfn, með sérstakt búr til þess að reyna að fanga björninni. Tilraunir til að bjarga honum fóru hins vegar út um þúfur og var hann felldur 17. júní. Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu daginn eftir kom fram að Umhverfisstofnun yrði falið að taka saman kostnað sem til féll vegna tilraunar við að bjarga hvítabirninum. Útlagður kostnaður stofnunarinnar nemur nú þegar 6,7 milljónum að sögn Kristínar Lindu Árnadóttir forstjóra. Nær hann til ferðareikninga fyrir starfsmenn Umhverfisstofnunar sem tóku þátt í björguninni og ferðakostnaðar Carstens Gröndalh ásamt flutningi á búri hingað til lands. Kristín Linda segir þó að þetta sé ekki endanleg tala því enn sé beðið eftir tveimur reikningum, annars vegar fyrir vinnu Gröndalhs og hins vegar vegna flutnings búrsins innan lands. Ekki liggur fyrir hvenær þeir berast en Kristín Linda segir það ekki stóra reikninga. Þess skal getið að inni í ofannefndri tölu er ekki kostnaður lögreglu, björgunarsveita og umhverfisráðuneytisins vegna tilraunarinnar til þess að bjarga bjarndýrinu.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Innlent Fleiri fréttir „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið Sjá meira