Ólafur til Kína 22. júlí 2008 14:36
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur þegið boð Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og forseta Kína Hu Jintao um að sækja Ólympíuleikana sem verða haldnir í Peking í næsta mánuði. Forsetinn mun koma til Kína 21. ágúst, vera viðstaddur lokahátíð leikanna 24. ágúst, fylgjast með keppnisgreinum og heimsækja íslenska íþróttafólkið. Forsetinn er verndari Íþrótta- og Ólympíusambandsins. Frá Kína heldur forsetinn til Dakka höfuðborgar Bangladess þar sem hann verður ásamt forseta Bangladess Iajuddin Ahmed ræðumaður á alþjóðlegu þingi um loftslagsbreytingar, gróðurfar og hækkun sjávarborðs. Þingið sækir fjöldi vísindamanna, sérfræðinga og áhrifafólks í alþjóðlegri stefnumótun. Íslenskir sérfræðingar og vísindamenn verða á meðal þátttakenda. Bangladess er eitt af fátækustu ríkjum veraldar og yfirvofandi loftslagsbreytingar ógna lífsskilyrðum tugmilljóna íbúa. Bráðnun íss og jökla á Norðurslóðum mun leiða til hækkunar sjávarborðs um allan heim og stór landsvæði í Bangladess geta horfið undir haf. Líklega er engu landi í veröldinni ógnað á viðlíka hátt og Bangladess með bráðnun íss sem loftslagsbreytingar á Norðurslóðum hafa í för með sér. Byggðir munu hverfa og fæðuöflun verða ærið torveld. Þróunin í heimshluta okkar Íslendinga getur haft hrikaleg áhrif á lífsskilyrði hundruða milljóna í Asíu. Hinu alþjóðlega þingi í Dakka er ætlað að leiða í ljós að allar þjóðir þurfa að taka höndum saman. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira