Gengisþróun leikur erlent verkafólk illa Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. júlí 2008 11:33 Einar Skúlason er framkvæmdastjóri Alþjóðahúss.
Útlendingar sem hafa flust hingað til lands á undanförnum árum finna glöggt fyrir samdrætti í efnahagslífinu, að sögn Einars Skúlasonar, framkvæmdastjóra Alþjóðahúss . Á sama tíma og tekjur þeirra hér á landi rýrna vegna gengisþróunar eykst eftirspurn eftir vinnuafli erlendis. „Það er helst gengið sem fólk hefur áhyggjur af. Fólk er kannski með helmingi lægri laun en það var með fyrir hálfu ári og þetta lítur ekki jafn vel út," segir Einar. Hann segir að þetta geti haft slæm áhrif á sjálfstraust fólks þegar það hringir heim til sín. „Þetta snertir þá sérstaklega illa sem eiga húsnæði eða einhverjar eignir í heimalandinu sem þeir þurfa að greiða af," segir Einar. Hann segir jafnframt að mikið sé um að fólk sendi peninga heim og vegna óhagstæðrar gengisþróunar beri fólk nú minna úr býtum. Einar segir að efnahagsástandið hafi þau áhrif að samsetning þeirra útlendinga sem eru hérna breytist. Þeir sem eru einhleypir fari frekar annað en fjölskyldurnar festi hér frekar rætur og hugsi sér síður til hreyfings. „Það er ekki alslæmt því að þá fara menn að hafa meiri hug á því að taka þátt í samfélaginu, læra íslensku," segir Einar. Einar bendir á að á meginlandinu sé farið að rofa verulega til í atvinnumálum. Í Póllandi hafi til dæmis verið um 20% atvinnuleysi fyrir ári síðan. Í vor hafi það hins vegar verið komið niður fyrir 10%. „Þannig að það er komin meiri samkeppni um það fólk sem hefur verið að vinna hér," segir Einar.
Mest lesið Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Erlent Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Erlent Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Innlent Fleiri fréttir Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana Sjá meira