Innlent

Fimm fíknefnamál í Reykjavík

Mynd/Eyþór

Fimm fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina.

Við sögu komu jafnmargir karlar en þeir voru allir teknir í Reykjavík, þrír í miðborginni og einn í Hlíðunum og Árbæ.

Í fórum þeirra fannst ýmist hass, amfetamín eða marijúana.

Tveir mannanna eru á þrítugsaldri, tveir á fimmtugsaldri og einn um tvítugt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×