,,Stúdentatíð í kreppuhríð" 4. nóvember 2008 12:54 Björg Magnúsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. ,,
Það er nauðsynlegt að varpa ljósi á stúdenta og ungt íslenskt fólk í núverandi árferði því margir eru áhyggjufullir," segir Björg Magnúsdóttir formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Stúdentaráð Háskóla Íslands bregst við fjármálakreppunni með sínum bestu vopnum sem að mati ráðsins eru hugmyndir, opin umræða og stefnumótun framtíðarinnar. Dagana 5. til 7. nóvember stendur Stúdentaráð fyrir röð funda um núverandi stöðu stúdenta og framtíðarhorfur undir yfirskriftinni ,,Stúdentatíð í krepputíð." Björg segir að kreppan komi niður á stúdentum líkt og landsmönnum öllum. Sumir fari afar illa út úr núverandi stöðu á meðan að aðrir sigli lygnan sjó. ,,Aftur á móti liggur fyrir að um þessar mundir eru stúdentar að gera það upp við sig hvort ár þeirra sé best borgið um borð í íslensku þjóðarskútunni eða hvort best sé að leita á aðrar strendur hvað varðar framtíðarbúsetu," segir Björg. Björg bindur miklar vonir við fundaröðina. Á miðvikudaginn verða málefni LÍN til umræðu sem og hækkandi stýrivextir og efnahagsástandið almennt. Gunnar I. Birgisson, stjórnarformaður LÍN og bæjarstjóri Kópavogs, Lilja Mósesdóttir doktor í hagfræði og Pétur Markan lánasjóðsfulltrúi SHÍ verða með framsöguerindi. Stúdentar og atvinna verður þema fundarins á fimmtudaginn. Mikilvægi Háskóla Íslands og atvinnuhorfur nýútskrifaðra stúdenta verður til umræðu. Ásgeir Runólfsson nýútskrifaður verkfræðingur og fyrrverandi starfsmaður Landsbankans gamla, Guðlaug Kristjánsdóttir formaður Bandalags háskólamanna og Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ flytja erindi. Á fundinum á föstudaginn verður horft til framtíðar og spáð í spilin með Björgu Evu Erlendsdóttur fjölmiðlakona, Gunnari Ólafi Haraldssyni forstöðumanni Hagfræðistofnunar og Sigríði Þorgeirsdóttur heimspekidósent sem öll verða með framsögur. Fundirnir hefjast klukkan 12 en staðsetning þeirra er breytileg. Á miðvikudaginn og föstudaginn funda stúdentar í stofu 101 í Lögbergi en fimmtudaginn í stofu 104 á Háskólatorgi.
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Fleiri fréttir Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Sjá meira