Dagsetningin 08.08.08 heillar 7. ágúst 2008 19:08
Áttundi, þann áttunda, tvö þúsund og átta rennur upp á morgun. Þessa eftirminnilegu dagsetningu ætla margir að nýta sér til hinna ýmsu viðburða á morgun. Sjöundi júlí í fyrra þótti merkisdagur til hinna ýmsu viðburða, enda dagsetningin sérstaklega eftirminnileg, núll sjö núll sjö núll sjö. Dagsetningin næsta föstudag verður ekki síður merkileg, núll átta núll átta núll átta. Verðandi brúðhjón horfa þennan dag björtum augum og eru dæmi um að prestar framkvæmi allt að sjö hjónavígslur. Prestar á höfuðborgarsvæðinu eru þétt bókaðir á föstudaginn en landsbyggðarfólk virðist ekki jafn ginnkeypt fyrir þessari dagsetningu. Það er einkum vantraust á karlpeningnum sem gerir daginn vinsælan, því dagsetningin verði að vera einföld eigi þeir að muna eftir brúðkaupsafmælinu. En það verður fleira um að vera þennan merka dag. Kammersveitin Ísafold ætlar að halda tónleika á Kjarvalsstöðum tileinkaða tónskáldinu George Ligeti sem er þekktastur fyrir tónlist sína úr myndum Stanley Kubrick. Verða allir salir Kjarvalsstaða undirlagðir þessum flutningi. Kvikmyndin Skrapp út eftir Sólveigu Anspach verður frumsýnd kvöldið áttunda áttunda og þá er eftir að nefna sýningu allra sýninga, Ólympíuleikana umdeildu í Peking. Átta er mikil happatala í Kína og til að undirstrika það verða leikarnir settir átta mínútur yfir átta á föstudagskvöldið, og átta sekúndum betur.
Mest lesið 51 prósent sé nóg Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Svandís segir nei Innlent Fleiri fréttir Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi Sjá meira