Innlent

Björgunarsveitir á hálendinu hafa fengið um 150 hjálparbeiðnir

Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar hafa fengið hátt í 150 aðstoðarbeiðnir frá ferðafólki á hálendinu það sem af er sumri. Slysavarnarfélagið hefur rekið svokallað hálendisverkefni síðastliðnar fjórar vikur. Sæunn Ósk Kjartansdóttir, hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, segir að lauslega megi gera ráð fyrir að tvær aðstoðabeiðnir berist á dag.

Landinu skipt í fjögur svæði

„Við skiptum landinu upp í fjögur svæði þar sem sveitirnar starfa á og eru það þá Fjallabak, Sprengisandur, norðan Vatnajökuls og Kjalvegur," segir Sæunn í samtali við Vísi. Sæunn bendir á að um margvísleg verkefni geti verið að ræða. Til dæmis berist aðstoðarbeiðnir frá fólki sem hafi fest bílana sína í miðri á eða fólki sem hefur sprengt dekk á bílunum sínum.

Hér eftir fara frásagnir af nokkrum þeim verkefnum sem hjálparsveitirnar hafa sinnt.

Fótbrotnaði í Brekknafjöllum



Síðustu nótt kom beiðni frá breskum ferðamönnum um aðstoð þar sem einn úr hópnum hafði slasast við göngu í Brekknafjöllum og tilkynnt var um að hann væri líklega fótbrotinn. Björgunarfélag Akraness sem er staðsett á Hveravöllum þessa vikuna var kölluð út og fór hún ásamt lögreglu frá Selfossi. Björgunarsveitarmenn fundu ferðamennina eftir talsverða leit a svæðinu rúmlega sex í morgun.

Missti meðvitund vegna sykursýkisfalls



Þá var björgunarsveitin Vopni, sem staðsett er í Dreka við Öskju, kölluð út í gærkveldi þar sem ferðamaður missti meðvitund vegna sykursýkisfall og var ekki með þau lyf sem til þurfti en hann var í tjaldi við Kverkfjöll. Björgunarsveitamenn fóru á staðinn til að hlúa að honum meðan verið var að bíða eftir þyrlu gæslunnar með lækni. Ferðamaðurinn var síðan fluttur á Landspítalann með þyrlunni.

Jafnframt hefur talsvert mikið verið að gera þessa vikuna hjá Björgunarsveitinni Gerpi sem staðsett hefur verið í Nýjadal, töluverður fjöldi af ferðamönnum hafa fengið leiðsögn og aðstoð frá þeim yfir ánna í Nýjadal og öðrum ám og vöðum.

Ársæll í Landmannalaugum



Björgunarsveitin Ársæll hefur verið í Landmannalaugum og meðal annars aðstoðað hóp þýskra skáta við að komast til byggða, en þeir voru illa búnir og orðnir kaldir. Þá var þýskt par sem sökkti bíl sínum í ánni við Eldgjá var flutt til byggða. Sveitin kom konu til aðstoðar sem var orðin ofkæld upp í Hrafntinnuskeri. Ásamt því að aðstoða fasta bíla og laga sprungin dekk.

Þá hefur mikið verið um aðstoðarbeiðnir frá ferðamönnum vegna fastra bíla og aðstoðar yfir ár og vöð. Einnig hafa björgunarsveitir sinnt útköllum vegna týndra ferðamanna, og einnig sinnt slösuðum ferðamönnum.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×