Segir prófessor í húmor alls ekki þurfa að hafa húmor Atli Steinn Guðmundsson skrifar 6. október 2008 14:07 Elliott Oring. MYND/California State University „
Stutta svarið er að ég fæst við ýmsar hliðar kímnigáfu í mannlegu samfélagi, allt frá venjulegum bröndurum upp í kímni í samræðum, spaugilegar aðstæður og svo framvegis," segir Elliott Oring, prófessor í húmor við Háskóla Íslands. Hér er ef til vill farið frjálslega með titilinn en Oring er í raun prófessor í mannfræði við Ríkisháskólann í Kaliforníu og er sendikennari á Fulbright-styrk við Háskóla Íslands nú á haustönn. Námskeiðin sem Oring kennir eru tvö og tilheyra bæði námi í þjóðfræði við félags- og mannvísindadeild. Annars vegar er þar um að ræða námskeiðið Að skrifa grein í fagtímarit en hins vegar námskeiðið Húmor sem hér er til tals. „Í námskeiðinu reynum við að greina gamansemi í mannlegum samfélögum og skoða í hvaða þætti hún greinist, hvernig samfélagið upplifir gamansemi á mismunandi tímum og hverjar helstu birtingarmyndir hennar eru," útskýrir Oring og bætir því við að húmor í þjóðfræðilegu samhengi hafi lengi verið honum áhugamál og hann þekki ýmsar íslenskar þjóðsögur og þá gamansemi sem í þeim lifir. Oring segist að öðru leyti ekki vera mikið inni í íslenskri gamansemi sérstaklega en vonir hans standi til þess að lokaritgerðir nemenda hans verði honum uppspretta fróðleiks þar um. Freistandi er að lokum að velta því fyrir sér hvort prófessor í húmor reiti af sér brandara öllum stundum í kennslu sinni eða hvort maður í slíkri stöðu þurfi yfirleitt að hafa húmor. Oring vefst ekki tunga um tönn þegar spurning þar að lútandi er borin upp: „Nei nei, það er alls ekki nauðsynlegt. Ekki frekar en að einhver sem kennir námskeið um geðklofa þurfi að vera geðklofi."
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira