Meðlimi Ungra vinstri grænna meinaður aðgangur að Ráðhúsinu SHA skrifar 21. ágúst 2008 11:15
Ísleifi Agli Hjaltasyni, meðlimi í stjórn Ungra vinstri grænna í Reykjavík, var meinaður aðgangur að Ráðhúsinu í Reykjavík af öryggisverði en þangað hugðist Ísleifur sækja borgarstjórnfund þar sem borgarstjórnarskipti fara nú fram. Ástæðan fyrir því að Ísleifi var meinaður aðgangur var sú að hann klæddist bol með mynd af Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, verðandi borgarstjóra, sem á stóð: „Þú er heldur enginn fokking borgarstjóri". „Við ætluðum að kíkja inn á fundinn, skrípaleikinn, en öryggisvörðurinn stöðvaði mig og sagði að ég mætti ekki koma inn með neinn áróður," útskýrir Ísleifur. Ísleifur var í hópi með nokkrum öðrum sem ekki klæddust eins bol og var þeim ekki meinaður aðgangur að Ráðhúsinu. Hópurinn skaust þá aðeins í burtu og leyfði Ísleifi að koma sér úr bolnum og hélt síðan aftur áleiðis í fundarsal Ráðhússins. Ísleifi og félögum hans úr Ungum vinstri grænum var hins vegar einnig meinað að koma inn með sérstakan borða inn í fundarsalinn en að sögn Ísleifs tókst það á endum. Á hann var áletrað: „Höldum áfram ruglinu". Anna Pála Sverrisdótti, formaður ungra jafnaðarmanna ásamt félögum sínum fyrir utan Ráðhús Reykjavíkur.Hanna Birna Kristjánsdóttir, nýjasti borgarstjóri Reykvíkinga mætir í ráðhúsið.Mótmælendur tóku upp á ýmsu fyrir utan ráðhúsið í morgun.Mótmælendur eru greinilega ljóðelskir.Þétt er setið á ráðhúspöllum.Boðið var upp á stólaleik fyrir utan ráðhúsið í morgun en sumum þykir nóg um tíðar hrókeringar þar á bæ.Vilhjálmur Jens Árnason, eiginmaður Hönnu Birnu, var mættur á pallana konu sinni til stuðnings.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira