Fyllti kerru af útrunnum matvælum í Nóatúni Atli Steinn Guðmundsson skrifar 12. júlí 2008 19:40 Kerran, stútfull af útrunnum matvælum. MYND/Neytandi
Viðskiptavinur Nóatúnsverslunarinnar í Smáralind hafði samband við Vísi og sagðist hafa fyllt innkaupakerru í versluninni af gosi, safa og þurrvörum sem allt reyndist útrunnið. Það sem rann út fyrir lengstu hafði 1. febrúar á þessu ári sem síðasta neysludag. „Ég er búinn að láta verslunarstjórann hafa þetta og hann ætlar að farga þessu. Þessar vörur voru úr einni hilluröð í búðinni og svona er þetta meira og minna í flestöllum hilluröðunum eða var það alla vega í dag," sagði maðurinn óhress. Ólafur Ragnarsson, verslunarstjóri Nóatúns í Smáralind, staðfesti að þetta hefði gerst. „Þetta er frekar óheppilegt en þarna var fyrst og fremst um að ræða safa og gos frá ölfyrirtækjunum og þau sjá alfarið um að panta í þetta, þrífa hillur og fylla á," sagði Ólafur. Þó væri þarna um að ræða kex og fleira sem runnið væri út og viðurkenndi hann fúslega að þar væri um að ræða mannleg mistök af hálfu Nóatúns. „Það er alltaf hvimleitt þegar svona kemur fyrir og þetta voru mistök." Versluninni í Smáralind verður lokað á mánudag en verið er að fækka Nóatúnsverslunum. „Þetta eru Hverafold, Furugrund og þessi búð, sem verður lokað. Við munum leggja kapp á búðirnar sem eftir eru og styrkja þær þjónustulega og útlitslega," sagði Ólafur.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira