Innlent

Fjórðu aðgerðabúðir Saving iceland á Hellisheiði

Fjórðu aðgerðabúðir Saving Iceland eru nú hafnar í fallegum á Hellisheiði og hafa samtökin sent Vísi fréttatilkynningu um aðgerðirnar sem hér fer á eftir.

 

„Stækkun Hellisheiðarvirkjunnar á sér nú stað til þess að afla orku fyrir stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga og aðrar stóriðjuframkvæmdir á suðvesturhorni landsins.

 

Í ár eru í búðunum aktívistar frá Íslandi, Ástralíu, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Danmörku, Englandi, Hollandi, Frakklandi, Belgíu og Ítalíu og fleiri löndum, sem hafa ákveðið að ganga til liðs við baráttuna. Upplýsingar um eyðileggingu íslenska öræfa hafa borist víða.

 

Í ár mun baráttan, auk umhverfisverndarsjónarmiða, snúast að miklu leyti um mannleg áhrif álframleiðslu; frá menningarlegum þjóðarmorðum í kjölfar báxítgraftar á Indlandi, Suður-Ameríku, Jamaíka og annars staðar í heiminum, til beinna tengsla áliðnaðarins við hergagnaframleiðslu og stríðsrekstur.

 

Alþjóðleg samstöðuvika með baráttu Saving Iceland mun eiga sér stað í Evrópu frá 21. - 27. júlí. Einnig stendur Saving Iceland fyrir ráðstefnu í ReykjavíkurAkademíunni 24. júlí, þar sem Samarendra Das, virtur indverskur rithöfundur og aktívisti, mun ásamt Andra Snæ Magnasyni og fleirum,, brjóta á bak aftur mýtuna um svokallaða „græna álframleiðslu" og fjalla um áhrif álframleiðslu á þriðja heiminn. Fyrirlesturinn verður auglýstur betur síðar auk upplýsinga um fleiri fyrirlestra sem Samarendra mun halda annars staðar á landinu.

 

Að lokum höfum við komið upp nýrri og betri heimasíðu, sem nú inniheldur mikinn fjölda greina, frétta og upplýsinga á íslensku. Nýja vefsíðan er á sömu gömlu slóðinni: www.savingiceland.org."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×