Innlent

Ekki vitað um seinkun fyrr en í morgun að sögn Iceland Express

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

„Þarna eru ákveðnar rangfærslur á ferð. Fyrir það fyrsta var það ekki vitað fyrr en klukkan fimm í morgun að þessi seinkun yrði," sagði Lára Ómarsdóttir, upplýsingafulltrúi Iceland Express, um hópinn sem beið í Leifsstöð í 10 klukkustundir og greint var frá á Vísi fyrr í dag.

 

„Við fórum strax í það að láta alla vita þegar þetta varð ljóst en auðvitað voru einhverjir búnir að tékka sig inn og þeir urðu fastir úti í flugsstöð. Bilun kom upp í afísingarbúnaði og við reyndum að finna aðra vél, sérstaklega með þennan hóp í huga sem við vissum að væri að fara á þetta fótboltamót," sagði Lára.

 

Þá sagði hún það ekki rétt að nánast ekkert hefði verið gert fyrir hópinn. Auðvitað væri „nánast" alltaf matsatriði en hið sanna væri að reynt hefði verið að gera allt fyrir hópinn og var fólkinu meðal annars gefinn matur og drykkur auk þess sem starfsmaður Iceland Express í Leifsstöð hefði gert allt sem í hans valdi stóð til að gera því biðina bærilegri.

 

„Okkur finnst mjög leiðinlegt að þessi hópur hafi lent í þessu en því miður gera bilanir yfirleitt ekki boð á undan sér," sagði Lára að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×