Meintir lottósvikahrappar í Flórída svara fyrir sig Atli Steinn Guðmundsson skrifar 12. júlí 2008 12:32 Sigling til Bahama-eyja var meðal þess sem ASTAR bauð Gunnari Kristinssyni.
Meintir svikahrappar hjá fyrirtækinu ASTAR í Flórída segja það alrangt að þeir stundi þá starfsemi að svíkja fé út úr grandlausu fólki með því að komast yfir kreditkortaupplýsingar þeirra í skjóli þess að korthafarnir hafi fengið lottóvinning. Vísir greindi frá því á þriðjudag er Gunnar Kristinsson fékk upphringingu og ræddi í framhaldinu í klukkustund við starfsmenn ASTAR sem reyndu hvað þeir gátu til að fá hann til að gefa þeim upp kreditkortanúmer hans. Hvöttu mennirnir Gunnar meðal annars til að kynna sér heimasíðu fyrirtækisins og birti Vísir hlekk sem vísaði á hana auk hlekks að síðu þar sem varað er við fyrirtækinu en þar er að finna nokkrar færslur fólks sem kveðst hafa orðið fyrir barðinu á ASTAR. Bradley Worten hjá All Seasons Travel & Resorts inc. (ASTAR) segir fyrirtækið vera ferðaþjónustuaðila með allt sitt á hreinu og öll tilskilin leyfi til að rækja starfsemina. Hann segir það leitt ef íslenskir viðskiptavinir hafi misskilið þjónustuna en fyrirtækið bjóði mjög hagstæð afsláttarkjör sem felist í ferðalagi um Flórída fyrir aðeins 998 bandaríkjadali. Hann segir viðskiptavini ASTAR panta ferðina á vefsíðu fyrirtækisins en komi svo upp þær aðstæður að fólk þurfi að hætta við sé það hið einfaldasta mál að afpanta ferðina og fá endurgreitt komi ósk þar um fram innan 30 daga frá pöntun. Worten segir það enn fremur ekki koma til greina að reynt sé að komast yfir kreditkortanúmer með bellibrögðum. Vissulega sé ASTAR fullkunnugt um netsíðu þar sem varað er við fyrirtækinu en færslur á þessari síðu séu allar runnar undan rifjum eins og sama mannsins. Sá stundi það að skrifa níð um fyrirtæki og stofnanir og krefjist í kjölfarið myndarlegrar fjárupphæðar fyrir að fjarlægja færslurnar af síðunni. „Við munum halda heiðarlegum viðskiptaháttum okkar áfram enda höfum við komið okkur upp góðum orðstír eftir margra ára þjónustu við viðskiptavini okkar," skrifar Bradley Worten að lokum og gefur upp hvort tveggja síma sinn og netfang vakni frekari spurningar hjá blaðamanni.
Mest lesið Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Innlent Fleiri fréttir Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Sjá meira