Verkstæði og rafstöðvar Ístaks á Grænlandi brunnu til kaldra kona 5. september 2008 11:54 Skammt frá vettvangi framkvæmda á vesturströnd Grænlands. MYND/Ístak
Verkstæðisbygging, rafstöðvar og lager Ístaks á vesturströnd Grænlands brann til kaldra kola í morgun sem þýðir að vinna við vatnsaflsvirkjun sem fyrirtækið er að byggja stöðvast. Loftur Árnason, framkvæmdastjóri Ístaks, segir í samtali við Vísi að eldsins hefði orðið vart um klukkan sex í morgun og reyndu starfsmenn að slökkva hann en tókst ekki. Virkjunin er fjarri mannabyggðum og aðeins hægt að komast á staðinn sjóleiðina þannig að ekki var hægt að kalla til slökkvilið með skömmum fyrirvara. Næsti bær við virkjunina er Sisimiut, sem er nærstærsti bær Grænlands, og er virkjað í þágu hans. Engan sakaði í brunanum en meðal þess sem brann voru þrjár 500 vatta rafstöðvar sem notaðar hafa verið við framkvæmdirnar. Loftur segir að tjónið sé töluvert, ekki síst vegna þess að nú stöðvast vinna við verkið á meðan unnið er að því að finna nýjar rafstöðvar og flytja þær á staðinn. Hann treystir sér þó ekki til að meta tjónið nákvæmlega á þessari stundu. Loftur Árnason, framkvæmdastjóri Ístaks. Um 80 manns vinna við gerð virkjunarinnar, flestir Íslendingar en einnig Grænlendingar og Slóvakar. Hófst vinna við virkjunina í fyrravor. Að sögn Lofts er um að ræða verk upp á sjö milljarða króna og fór fyrsta árið í að byggja upp vinnubúðir og verkstæði á staðnum. Byrjað var á jarðgangagerð vegna virkjunarinnar í fyrrahaust og eru menn einnig í steypuvinnu eftir að hafa sprengt út fyrir stöðvarhúsi virkjunarinnar. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Ístaks er um 15 megavatta virkjun að ræða og á hún að vera tilbúin 2010. Einnig felst í samningi Ístaks við Orkustofnun Grænlands rekstur virkjunarinnar í fimm ár eftir gangsetningu.
Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Fleiri fréttir Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa Sjá meira