Vinir Tíbets mótmæla í sjöunda sinn 19. apríl 2008 15:23 Frá mótmælum Vina Tíbets við kínverska sendiráðið
Félagið Vinir Tíbets mættu í sjöunda sinn fyrir utan kínverska sendiráðið í dag. í tilkynningu frá félaginu segir að þeim eina og hálfa mánuði sem liðinn er síðan þau hófu aðgerðir hafi lítið gerst hjá ráðamönnum landsins. Hér að neðan má sjá tilkynninguna frá félaginu: Ályktun Vina Tíbets eftir samstöðufund fyrir utan kínverska sendiráðið laugardaginn 19. apríl 2008 Í dag mættum við í sjöunda sinn fyrir utan kínverska sendiráðið. Á þessum eina og hálfa mánuði sem hefur liðið síðan við hófum aðgerðir hefur lítið gerst hjá ráðamönnum landsins nema að við erum nokkuð nær því að vita afstöðu þeirra sem stýra landinu. Einn ráðherra hefur gefið skýr skilaboð og svarað bréfi okkar, ekki aðeins í orði heldur einnig í verki. Aðspurður af fréttamanni hvort að það gæti ekki spillt viðskiptahagsmunum á milli þjóðanna ef hann talaði um ástandið í Tíbet við kínverska ráðamenn, hvað Viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, að hann mæti mannréttindi ofar viðskiptahagsmunum. Þessu fögnum við og vonum að hann standi við stóru orðin. Málefni Tíbets var rætt í Utanríkisnefnd og lét Steingrímur J. Sigfússon bóka nokkur mikilvæg atriði sem gætu stuðlað að mannréttindum í Tíbet. Þessi fundur var haldinn 26. mars en illa hefur gengið að fá annan fund út af þessu máli og engar ályktanir verðið gefnar út. Þrír þingmenn svöruðu ákalli okkar til þingheims og var því öllum þingmönnum sent annað bréf í gær þar sem ítrekað var mikilvægi þess að gera sjálfa sig meðvitaða um stöðuna í Tíbet og kallað eftir aðgerðum. Viðbrögðin hafa verið mun betri í þetta sinn, um tuttugu hafa svarað og þar á meðal ráðherrar. Það vakti þó furðu okkar að Menntamálaraðherra virðist ekki hafa neinn hug á að ræða málefni Tíbet, samkvæmt bréfi hennar til okkar, þegar hún fer til Kína til að taka þátt í Ólympíuleikunum sem eru víst orðnir algerlega lausir við alla pólitík. Við fögnum því en minnumst þess að sama skapi að kínversk yfirvöld hafa sniðgengið Ólympíuleikana all oft í pólitískum tilgangi. Við viljum líka minna á að hlaup með Ólympíukyndilinn á rætur sínar að rekja til annars leiðtoga sem sagði að Ólympíuleikarnir væru ekki pólitískur gjörningur, en sá leiðtogi hét Hitler. Við ætlumst ekki til að íþróttamenn okkar sleppi því að taka þátt í Ólympíuleikunum en betra væri að ráðamenn okkar sem ætla sér að mæta geri grein fyrir því, hvort þeirra för verði aðeins til skemmtunar eða hvort að þeir ætli að nota hana til að þrýsta á kínversk yfirvöld varðandi mannréttindi. Við höfum komið með fjölmargar tillögur hvernig við getum gert eitthvað sem þjóð til að verða við hjálparkalli Tíbeta. Við skorum hér með á að þverpólitísk samstaða náist um það að við bjóðumst til að halda fyrstu samræðurnar á milli Dalai Lama og kínverskra yfirvalda. Væri það mjög í anda þeirrar ímyndar sem forsætisráðherra vill að þjóðin verði markaðssett sem, þ.e.a.s. Friðarþjóðin.
Mest lesið Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Tímabært að ræða einhverfu kvenna Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Erlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Fleiri fréttir Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Sjá meira