Baðst afsökunar á framgöngu í fjölmiðlum 13. ágúst 2008 15:43 MYND/Vilhelm
Magnús Skúlason, arkitekt og fulltrúi F-listans í skipulagsráði Reykjavíkurborgar, hefur trú á því að samkomulag náist um að Listaháskóli Íslands rísi á Frakkastígsreit við Laugaveg en að gera þurfi ákveðnar breytingar á byggingunni. Magnús bað aðstandendur skólans afsökunar á hvað hann hefði verið hvassyrtur í fjölmiðlum á fundi í dag. Fundur var í skipulagsráði í morgun og á þann fund komu fulltrúar Listaháskólans, Samson og +Arkitekta sem teiknuðu skólann. Þar kynntu þeir hugmyndina og var ákveðið að þeir myndu funda með skipulagsstjóra um framhaldið og reyna að ná sátt í málinu. Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hefur lýst sig andsnúinn tillögu um bygginguna eins og hún lítur út núna og vill að tekið verði meira tillit til götumyndar Laugavegarins. Þeirri skoðun deilir Magnús Skúlason sem í morgun sat sinn fyrsta fund sem fulltrúi F-listans í skipulagsráði. Hann kom þar inn eftir að borgarstjóri hafði vikið Ólöfu Guðnýju Valdimarsdóttur úr ráðinu vegna ágreinings. Telur að samkomulag náist um Listaháskólann Magnús sagði að fulltrúar þeirra aðila sem standi að byggingunni hafi kynnt hana. Hann segist hafa haft sig lítið í frammi á fundinum en að tillagan sé mjög merkileg. „Ég hef hins vegar líka lagt áherslu á götumynd Laugavegarins samanber málefnasamning núverandi meirirhluta," segir Magnús. Magnús viðurkenndi aðspurður að hann hefði beðið þá aðila sem kynntu tillöguna afsökunar á því hversu hvassyrtur hann hefði verið í fjölmiðlum. „Minn karakter er þannig. Mér brá við að sjá þessi hús hverfa," segir Magnús. Aðspurður hvort hann telji að Listaháskólinn rísi við Laugaveg segir Magnús að hann sjái það alveg fyrir sér en þó þurfi að gera breytingar á tillögunni. „Það þarf að vinna þetta frekar og ég held að það sé fullur vilji til þess af hálfu beggja aðila," segir Magnús. Málið sé nú í faglegu ferli og hann hafi trú á því að niðurstaða náist í því.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira