Borgarstjóri vísar fullyrðingum Sóleyjar á bug Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. apríl 2008 12:23 Ólafur F. Magnússon borgarstjóri. Mynd/ Valli.
Borgarstjóri vísar á bug yfirlýsingum Sóleyjar Tómasdóttur, varaborgarfulltrúa Vinstri grænna um að afstaða hans í mannréttindamálum sé byggð á vanþekkingu og fordómum gagnvart minnihlutahópum. Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri segist í yfirlýsingu þvert á móti, hafa lagt áherslu á þennan málaflokk með ýmsu móti, ekki síst þá þætti er varði málefni minnihlutahópa. Hann segir að unnið sé markvisst að margvíslegum mannréttindaverkefnum sem tilheyri hinum ýmsu sviðum borgarinnar. „Nú þegar hefur verið unnið að því að kynna mannréttindastefnu borgarinnar s.s með þýðingu hennar á fimm tungumál, opnuð hefur verið heimasíða mannréttindaskrifstofu og verið er að leggja lokahönd á verkáætlun í málefnum innflytjenda. Einnig eru starfandi ýmsir starfshópar á vegum mannréttindaráðs eins og t.d. um möguleika á atvinnuþátttöku fatlaðra og öryggi á og við veitingastaði borgarinnar," segir í yfirlýsingu frá borgarstjóra. Ólafur segir að Sóley og hundrað daga meirihlutinn hafi haft rúman mánuð til að ráða í stöður hjá Mannréttindaskrifstofu sem þau hafi þó ekki gert. Þá bendir hann á að í tíð hundrað daga meirihlutans, í nóvember sl. hafi enginn starfsmaður á mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar verið í fjórar vikur, meðan mannréttindastjóri var í námsleyfi „Ákvörðun meirihlutans í borgarstjórn nú að gera skipulagsbreytingar á starfsemi mannréttindaskrifstofu borgarinnar miðar að því að nýta betur þann mannauð sem nú þegar starfar að mannréttindamálum á öllum sviðum borgarinnar en alls starfa níu mannréttindafulltrúrar innan borgarkerfisins. Með skipulagsbreytingunum gefst meira svigrúm til að styrkja einstök verkefni sem nýtast munu beint í þágu borgarbúa," segir borgarstjóri í tilkynningunni.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Innlent Fleiri fréttir Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Sjá meira