Draga lærdóm af skjálftunum árið 2000 30. maí 2008 15:32 Björn Bjarnason ásamt þeim Víði Reynissyni og Jóni Bjartmarz frá ríkislögreglustjóra. Mynd/ Vilhelm.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að aðgerðir viðbragðsaðila í tengslum við jarðskjálftana í gær hafi heppnast mjög vel. Hann segir að fullt traust hafi ríkt á milli allra aðila sem komu að björgunarstarfi. Á innan við klukkustund hafi verið byrjað að koma fólki til hjálpar. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Björn hélt ásamt fulltrúum ríkislögreglustjóra í dag. Björn segir að næsta skref í stöðunni sé að koma á fót tímabundinni þjónustumiðstöð á skjálftasvæðunum. Tillaga að stofnun slíkrar þjónustumiðstöðvar var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Björn segir að með slíkri þjónustumiðstöð sé verið að draga lærdóm af skjálftunum árið 2000. Einnig sé verið að hrinda í framkvæmd ákvæði í lögum um almannavarnir, sem samþykkt voru í nótt. Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir að þeir aðilar sem komi að þjónustumiðstöðinni séu Árborg, Ölfus, Hveragerði, sveitafélögin í Flóa og Grímsnesi, Viðlagatrygging, Rauði krossinn, landlæknir og aðrir sem veiti íbúum á svæðinu þjónustu vegna jarðskjálftanna. Við stofnun þjónustumiðstöðvarinnar hafi almannavarnadeild ríkislögreglustjóra átt samráð við Samband íslenskra sveitafélaga. Þá segir í tilkynningunni að íbúar á jarðskjálftasvæðinu geti leitað til þjónustumiðstöðvarinnar eftir hvers kyns aðstoð í tengslum við afleiðingar skjálftans. Þar verði m.a. veitt liðsinni vegna tryggingamála, hvort sem um ræði tjón sem Viðlagatrygging bæti eða almenn tryggingafélög. Einnig muni þjónustumiðstöðin leggja lið varðandi tryggingabætur og mat á tjóni vegna skjálftans. Þá verði veitt áfallahjálp á vegum þjónustumiðstöðvarinnar. Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, sagði að fyrsti samráðsfundur um stofnun þjónustumiðstöðvarinnar verði haldinn klukkan fjögur í dag. Gert væri ráð fyrir að hún yrði komin upp í síðasta lagi á mánudaginn,
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira