Innlent

Draga lærdóm af skjálftunum árið 2000

Björn Bjarnason ásamt þeim Víði Reynissyni og Jóni Bjartmarz frá ríkislögreglustjóra. Mynd/ Vilhelm.
Björn Bjarnason ásamt þeim Víði Reynissyni og Jóni Bjartmarz frá ríkislögreglustjóra. Mynd/ Vilhelm.

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að aðgerðir viðbragðsaðila í tengslum við jarðskjálftana í gær hafi heppnast mjög vel. Hann segir að fullt traust hafi ríkt á milli allra aðila sem komu að björgunarstarfi. Á innan við klukkustund hafi verið byrjað að koma fólki til hjálpar. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Björn hélt ásamt fulltrúum ríkislögreglustjóra í dag.

Björn segir að næsta skref í stöðunni sé að koma á fót tímabundinni þjónustumiðstöð á skjálftasvæðunum. Tillaga að stofnun slíkrar þjónustumiðstöðvar var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Björn segir að með slíkri þjónustumiðstöð sé verið að draga lærdóm af skjálftunum árið 2000. Einnig sé verið að hrinda í framkvæmd ákvæði í lögum um almannavarnir, sem samþykkt voru í nótt.

Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir að þeir aðilar sem komi að þjónustumiðstöðinni séu Árborg, Ölfus, Hveragerði, sveitafélögin í Flóa og Grímsnesi, Viðlagatrygging, Rauði krossinn, landlæknir og aðrir sem veiti íbúum á svæðinu þjónustu vegna jarðskjálftanna. Við stofnun þjónustumiðstöðvarinnar hafi almannavarnadeild ríkislögreglustjóra átt samráð við Samband íslenskra sveitafélaga.

Þá segir í tilkynningunni að íbúar á jarðskjálftasvæðinu geti leitað til þjónustumiðstöðvarinnar eftir hvers kyns aðstoð í tengslum við afleiðingar skjálftans. Þar verði m.a. veitt liðsinni vegna tryggingamála, hvort sem um ræði tjón sem Viðlagatrygging bæti eða almenn tryggingafélög. Einnig muni þjónustumiðstöðin leggja lið varðandi tryggingabætur og mat á tjóni vegna skjálftans. Þá verði veitt áfallahjálp á vegum þjónustumiðstöðvarinnar.

Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, sagði að fyrsti samráðsfundur um stofnun þjónustumiðstöðvarinnar verði haldinn klukkan fjögur í dag. Gert væri ráð fyrir að hún yrði komin upp í síðasta lagi á mánudaginn,




Fleiri fréttir

Sjá meira


×