Innlent

Ölvaður leigubílstjóri á Leifsstöð

Leigubílstjóri var tekinn fyrir ölvunarakstur á Keflavíkurflugvelli í dag eftir að vitni höfðu fundið áfengislykt af manninum. Lögreglan kom á svæðið og handtók manninn sem viðurkenndi strax að hafa ekið undir áhrifum. Sagðist hann hafa fengið sér „nokkra öllara" í gærkvöldi en náði svo ekki sofa af sér áfengisvímuna því hann var mættur til vinnu milli klukkan fjögur og fimm í morgun.

Leigubílstjóranum var sleppt að lokinni blóðsýnistöku og tók hann leigubíl heim. Líklegast verður bílstjórinn sviptur ökuréttindum en þó ekki fyrr en niðurstöður úr blóðsýnistökunni liggja fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×