Mikið að gera á hálendisvakt Landsbjargar Nanna Hlín skrifar 7. ágúst 2008 14:02
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur verið með eftirlit uppi á hálendi Íslands í sumar sem lýkur núna 10. ágúst. „Það hefur gengið mjög vel en verið mjög annasamt hjá okkur," segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir hjá Landsbjörg. „Það hefur verið svolítið um leitir en einnig mikil aðstoð við ár, það hefur raunar verið staðið vakt við ákveðnar ár og bílar sem festast dregnir upp." Björgunarsveitirnar hafa aðsetur á fjórum stöðum, Öskju, Nýjadal, Landmannalaugum og á Hveravöllum og keyra úr frá þeim stöðum. Er eftirlitið unnið í sjálfboðavinnu og vinnur hver viku í senn. Þetta er þriðja sumarið sem eftirlit er upp á hálendi og hefur það gefist mjög vel að sögn Ólafar. Sem dæmi um það nefnir hún að ekkert banaslys hafi verið uppi á hálendi í þeim tíma. Það sem hefur komið mest á óvart síðustu sumur er hve margir erlendir ferðamenn fara upp á hálendið á fólksbifreiðum. Bílaleigubílar eru ekki tryggðir á fjallavegum og stendur það skýrum stöfum á stýrum þeirra en engu að síður fara ferðamenn upp á hálendi á þeim. Að sögn Ólafar er jafnt um íslenska sem erlenda ferðamenn sem björgunarsveitirnar aðstoða. Þeir sem ferðast á eigin vegum upp á hálendi eiga einnig kost á því að leggja inn ferðaáætlun til björgunarsveita. Margir erlendir ferðamenn gera sér hins vegar ekki grein fyrir því. Þess vegna kemur stundum upp þær aðstæður að ekki sé vitað að fólk sé týnt fyrr en það mætir ekki í flug. Ólöf nefnir að það komi erlendum ferðamönnum oft á óvart hve erfiðar aðstæður séu á Íslandi. Jafnvel þótt þeir hafi undirbúið sig áður. Björgunarsveitirnar halda uppi vefnum safetravel.is þar sem upplýsingar eru að finna á sex tungumálum um aðstæður á Íslandi. Landsbjörg reynir að auglýsa síðuna sem víðast en Ólöf nefnir að erfitt sé fyrir félagssamtök að ná til allra þeirra hundruð þúsunda sem koma til Íslands á hverju ári.
Mest lesið Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent 51 prósent sé nóg Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Svandís segir nei Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Fleiri fréttir Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Sjá meira