Fréttamaður frá CNN ræðir við Ólaf Ragnar 21. apríl 2008 16:12 Charles Hodson og Ólafur Ragnar Grímsson. MYND/Orkuveita Reykjavíkur
Charles Hodson, einn kunnasti fréttamaður CNN-sjónvarpsstöðvarinnar, er nú staddur hér á landi með það fyrir augum að taka upp ítarlegt viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands. Hodson er Breti með háskólapróf í stjórnmálafræði og hagfræði og er einn umsjónarmanna viðskiptaþáttarins „World Business Today". Um hádegisbil í gær voru þeir Ólafur og Hodson við upptökur í Hellisheiðarvirkjun og lét bandaríska sjónvarpsfólkið í ljós aðdáun á þeirri tækni sem þar er nýtt til að virkja endurnýjanlegar orkulindir. Þá kom það gestunum greinilega nokkuð á óvart að virkjun sem enn er í byggingu skyldi vera opin gestum og gangandi. Á meðan Hodson ræddi við Ólaf Ragnar átti t.a.m. hópur Ungverja leið hjá. Þeir voru frá smábæ utan við Búdapest þar sem jarðhita er að finna, en hann er einungis nýttur til baða. Í gestamóttöku Hellisheiðarvirkjunar er að finna ýmislegt upplýsinga- og fræðsluefni um jarðfræðina, jarðhitann og jarðhitanýtingu hér á landi. Þess má geta að síðastliðinn sunnudag komu um 600 gestir í móttökurými Hellisheiðarvirkjunar. Orkuveita Reykjavíkur greindi frá þessu í fréttatilkynningu.
Mest lesið Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Fleiri fréttir „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Sjá meira