Um 350 minkar veiddust í sérstöku átaki 21. apríl 2008 11:15
Tæplega 350 minkar veiddust í fyrra í sérstöku tilraunaverkefni á vegum yfirvalda sem ráðist var í til að athuga hvort fýsilegt væri að útrýma mink á Íslandi. Þetta kemur fram á vef umhverfisráðuneytisins. Átakið stendur yfir á árunum 2007-2009 og liggja fyrstu niðurstöður fyrir en þær verða birtar innan skamms. Tvö svæði urðu fyrir valinu í átakinu, Eyjafjörður og Snæfellsnes, og hefur veiðiálag á svæðunum tveimur verið aukið verulega frá því sem áður var auk þess sem veiðarnar eru með skipulegri hætti. Við minkaveiðar eru einkum tvær aðferðir notaðar þ.e. gildruveiði og hundaveiði. „Lagðar eru gildrur þar sem von er á umferð minka og hundar notaðir til að þefa uppi bæli minka. Gildrum var fjölgað umtalsvert frá því sem áður var og þær jafnframt lagðar víðar en áður. Áhersla var lögð á að hefja gildruveiðarnar af fullum þunga um mánaðarmótin febrúar/mars og voru gildrurnar hafðar úti út nóvembermánuð. Þeirra var svo vitjað reglubundið allan tímann. Hundaveiði hófst í lok mars á Snæfellsnesi og um mánuði seinna í Eyjafirði og var meginþungi hundaveiðinnar frá apríl til júní en minni eftir það," segir á vef umhverfisráðuneytisins. Heimtur urðu þær að 204 minkar veiddust á Eyjafjarðarsvæðinu en 145 á Snæfellsnesi. Aðeins eru talin fullorðin dýr en ekki hvolparnir eins og tíðkast hefur víðast. Af samanburði við fyrri ár er ljóst að um allnokkra aukningu er að ræða frá fyrri árum. Hlutfall kvendýra í veiðinni var heldur hærra en hlutfall karldýra, 58 prósent á Eyjafjarðarsvæðinu og 51 prósent á Snæfellsnesi.
Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Fleiri fréttir Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sjá meira