Vill að formaður Landverndar víki vegna setu í stjórn Landsvirkjunar 21. apríl 2008 12:11
Prófessor við Háskólann á Akureyri krefst þess að formaður Landverndar segi af sér þar sem hann er orðinn varamaður í stjórn Landsvirkjunar. Hann segir náttúruverndarsinnum brugðið og það rýri traust Landverndar að formaður samtakanna sitji beggja megin borðsins. Björgólfur Thorsteinsson, formaður Landverndar, varð varastjórnarmaður Landsvirkjunar síðastliðinn föstudag. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor við Háskólann á Akureyri, gagnrýnir þetta harðlega á heimasíðu sinni og krefst þess að Björgólfur segi af sér hið fyrsta. Hann spyr hvort Björgólfur hyggist áfram berjast með náttúruverndarsinnum gegn álveri á Bakka við Húsavík og tilheyrandi virkjunum og vinna síðan að gagnstæðum markmiðum á stjórnarfundum Landsvirkjunar. Náttúruverndarsinnum sé brugðið og það rýri traust Landverndar að formaður samtakanna sé varamaður í stjórn Landsvirkjunar. Björgólfur svarar þessu á heimasíðu Ingólfs og segir að Samfylkingin hafi beðið sig um að sitja í varstjórn sem talsmaður náttúruverndarsjónarmiða. Hann gaf það hins vegar ekki upp hver það var innan Samfylkingarinnar. Hann segir kostina þá að hægt sé að gera náttúruverndinni hærra undir höfði innan stjórnar fyrirtækisins og þar sé ákveðið tækifæri til að koma náttúruverndarsjónarmiðum að. Björgólfur segir í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að hann hyggist áfram starfa sem formaður Landverndar þrátt fyrir þetta. Málið verður tekið fyrir á stjórnarfundi Landverndar á miðvikudaginn.
Mest lesið Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Ákæru fyrir manndráp vísað frá Erlent Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Innlent Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent Fleiri fréttir „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Sjá meira