Margrét stefnir Frjálslynda flokknum 21. apríl 2008 10:44 MYND/GVA „
Ég er nú bara að láta reyna á rétt minn sem launþega," segir Margrét Sverrisdóttir varaborgarfulltrúi sem stefnt hefur Frjálslynda flokknum vegna meintra vanefnda á launagreiðslum til hennar þegar hún var framkvæmdastjóri flokksins. Margréti var sagt upp í lok nóvember árið 2006 og urðu töluverðar deilur innan flokksins vegna þess. Á miðstjórnarfundi í desember sama ár var gerð sátt um að hún færi í launað leyfi frá störfum sínum sem framkvæmdastjóri til loka landsþings flokksins sem var í lok janúar í fyrra. Á því landsþingi bauð Margrét sig fram til varaformanns flokksins en laut í lægra haldi fyrir Magnúsi Þór Hafsteinssyni. Skömmu síðar hætti Margrét í Frjálslynda flokknum. Að sögn Margrétar fékk hún engan uppsagnarfrest borgaðan. „Ég óska eftir að fá borgaðan þriggja mánaða uppsagnarfrest sem mér finnst sanngjörn og eðlileg krafa eftir tíu ár í starfi," segir Margrét. Að hennar sögn telur flokkurinn að uppsagnarfrestur hennar hafi hafist í kjölfar þess að henni hafi verið sagt upp í nóvember 2006 en því sé hún ósammála. Hún hafi verið tilbúin að vinna fyrir flokkinn eftir landsþingið í janúar. „Ég er fyrst og fremst að láta reyna á rétt minn sem launþega og ég mun taka því ef niðurstaðan verður Frjálslynda flokknum í hag," segir Margrét.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Sjá meira